18.1.2012 | 16:44
Samtryggingarkerfið leitt til öndvegis?
Þeir sem hæst kalla: Krossfestum hann, krossfestum hann bundust samtökum á sínum tíma að fría Ingibjörgu og Björgvin. Þeir kasta nú steinum úr glerhúsi þegar þeir tala um að samtryggingarkerfið verði leitt til öndvegis ef alþingismenn ganga í sig og viðurkenna að sakfelling eins manns sé stílbrot í réttarríkinu.
Í grein Ögmundar Jónassonar í Morgunblaðinu í gær birtist valmenni, sem viðurkennir rangindin, sem Alþingi hefur vaðhaft í krafti meirihlutavalds og bendir á þá einföldu staðreynd að réttarhöldin draga athygli okkar að persónulegum hefndum en ekki uppgjöri við sjálf okkur og stjórnmálin.
Að þessum réttarhöldum fylgir ekkert annað en sundrung og alls enginn nýr dagur. Ég get alveg tekið undir með Karli biskupi að þetta er þjóðarsmán.
|
Uppreisn ef þingmenn styðja tillögu Bjarna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
30.12.2011 | 23:34
Tónlist fyrir lifandi fólk
Fjölskyldan var á jólatónleikum Módettukórsins í Hallgrímskirkju í gær. Ekki þeir fyrstu þetta árið. Samt ný upplifun. Ekkert léttmeti. Þekkti ekki nema brot af tónlistinni. Margt nýtt eða nýjar útsetningar á gömlu. Gamalt vín á nýjum belgjum. Tónskáldin notuðu kórinn og kórinn notaði kirkjuna. Allt reyndi þetta á mann til ánægju. Endurtekningin er ekki til, sagði Kirkegård. Ekki einu sinni í tónlist. Jafnvel þó sungið sé eftir sömu nótum aftur og aftur.
Þóra Einarsdóttir söng einsöng. Söng englasöng. Pabbi hennar sagði mér einu sinni að hún hefði farið að læra að syngja fyrir einhverjar tiktúrur. Það væri ekkert lag í foreldrum hennar. Það er ótrúlegt. Hún er þremenningur við frændfólk mitt á Kiðafelli. Margir góðir straumar liggja um Kiðafell.
Kantorinn í Skólavörðuholtinu hefur lyft Grettistaki í íslenskri sönglist á sinn hógværa og yfirlætislausa hátt. Hann er hvalreki.
9.11.2011 | 16:33
Bora eða brúa
Annað er ekki í stöðunni skv. orðum Ögmundar. Hann verður að standa við orð sín. Vegabætur á Hjallahálsi og Ódrjúgshálsi í Austur-Barðastrandarsýslu fyrst - á meðan athugað er með jarðgöng eins og Ögmundur hefur bent á - er falslausn. Það er tilboð um óbreytt ástand. Það er óásættanlegt. Enda stendur það þversum í Vestfirðingum. Það þýðir ekki að bjóða fullorðnu fólki upp á svona falslausnir.
Leið B, brú frá Reykjanesi í Melanes eða jarðgöng um hálsana. Annað hangir ekki á spýtunni. Og ykkur að segja þá munu jarðgöng ekki koma til greina fyrr en eftir áratugi vegna kostnaðar. Það veit Ögmundur. Því er hann bara að þvæla málinu og fífla íbúana fyrir vestan.
Annars held ég að VG taki Eff-blokkara með morgunkaffinu. Það er meðal, sem kemur í veg fyrir að maður ráðist í framkvæmdir.
En það er önnur saga.
|
Allar leiðir í skoðun nema leið B |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
26.9.2011 | 09:14
Sjálfstæðisflokkurinn vill ráðstafa framtíðarskatttekjum
núna.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur talað fyrir því að skattleggja séreignasparnað þegar féð er lagt til hliðar, en ekki þegar það er notað til lífeyris eins og nú er gert ráð fyrir. Sú ráðstöfun mundi auðvitað leiða til þess, að kynslóðin, sem á að sjá um okkur í framtíðinni, yrði svipt þessum skatttekjum en byrðunum létt af okkur í svipinn. Þetta tel ég eigingjarnt sjónarmið en alveg í takt við það, hvernig síngirnin hefur hlaupið með okkur í gönur á síðustu árum.
Pétur hefur ekki komið auga á þessa ósamkvæmni í pólitík flokksins, en mun sjálfsagt leggjast á sveif með þeim, sem vilja spara skatttekjur af séreigninni þar til síðar, þegar honum verður ljóst þetta misræmi.
|
Veðsetning framtíðarskatttekna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
24.9.2011 | 23:58
Mundi á Hóli
Ég er í Búðardal að vinna. Konan mín segir að ég sé að skemmta mér. Það er nærri lagi. Í dag heimsótti ég Munda á Hóli á hjúkrunarheimilið og fékk í nefið hjá honum. Það voru fyrstu kynni okkar Munda fyrir rúmum 30 árum að hann bauð mér í nefið undir kaupfélagsveggnum. Síðan höfum við átt samfélag um neftóbakið. Hann er hættur að taka í nefið sagði hann mér. Það hélt ég aldrei mundi gerast. Eins og Sigríður Árnadóttir vinkona hans sagði: hann færi aldrei frá Hóli nema í kistu. Sú spá rættist heldur ekki. Nú þarf Mundi svolitla aðstoð og hana fær hann hjá góðu fólki í Búðardal.
Þegar ég kom heim í litlu íbúðina mína beið mín tölvubréf frá bróður mínum í Reykjavík. Með því fylgdi þáttur, sem birst hafði í norska sjónvarpinu um nýja tímann og gamla í Dölunum. Þar er Mundi í aðalhlutverki og löggan, sem lék sér hjá okkur í Brimnesi á barnsaldri svo og Bjarni á Leiðólfsstöðum og fleira gott fólk.
http://www.nrk.no/nett-tv/klipp/788276/
23.9.2011 | 09:08
Óskað er eftir stjórnmálamanni, sem er
heiðarlegur, skilvís, hreinskilinn, ábyrgur, alvörugefinn og málefnalegur mannvinur.
|
Telur að Icesave-málinu verði vísað frá |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
18.8.2011 | 21:45
Harpan í áföngum
Um glugga hússins
stafar ljósbrotnum minningum
margra heima.
Og Hljóðabungan
rís á snælögum kynslóða,
sem lögðu henni allt sitt
í gnauði ókunnra radda.
Þar -
eru Drangar genginna.
En Kaldalón
fóstraði blómstur
hlýrra tóna
við jökulsporðinn...
...þrátt fyrir allt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.8.2011 | 17:19
Alzheimer
Á tónum rökkurs tifa minningar
og týndir gestir sveima þér við bak.
Fugl í brjósti syngur framtíðinni ljóð,
sem flögrar hjá
í gær – eitt andartak.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 17:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.8.2011 | 14:09
Ekki benda á mig
ég var að æfa lögreglukórinn, dettur manni í hug við endalausar afsakanir Iceland Express. Fyrst voru vandræðin á Keflavikurflugvelli og vöruþurrð í flugvélunum þjónustuaðila á þeim velli að kenna, síðan ævintýraleg seinkun og sumarbúðasamlífi strandaglópa í París og loks liggja Danir á leið í sumarleyfi í því.
Þetta minnir á rekstur, sem er á síðustu metrunum og öllum virðist skítsama. Það er e-r útrásarhugmyndafræði í þessu.
|
Asa starfsmanns um að kenna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.7.2011 | 16:03
Auðvitað er þetta um ofbeldi
Hvaða hundakúnstir eru þetta í verslunarmanninum. Það er ekkert hægt að misskilja þessa mynd og textann. Það verður engin eðlisbreyting á barsmíðunum við að stunda þær innan hrings. Á að reyna að telja okkur trú um að barsmíðar í hring séu siðvætt ofbeldi?
Sveiattan.
|
Ekki stuðlað að ofbeldi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |



arh
asgerdurjoh
drsaxi
fhg
gudrunvala
hallibjarna
iceberg
kaffi
kreppukallinn
lehamzdr
oliskula
ragnar73
sabroe
skulablogg
stefangisla
undraland
bjarnihardar
bjarnimax
gattin
gp
zeriaph
helgi-sigmunds
disdis
holmfridurpetursdottir
jogamagg
rabelai
jonmagnusson
jonsnae
jonvalurjensson
kamasutra
krissiblo
maggadora
martasmarta
logos
siggifannar
siggisig
valdimarjohannesson
icekeiko

