18.1.2012 | 16:44
Samtryggingarkerfið leitt til öndvegis?
Þeir sem hæst kalla: Krossfestum hann, krossfestum hann bundust samtökum á sínum tíma að fría Ingibjörgu og Björgvin. Þeir kasta nú steinum úr glerhúsi þegar þeir tala um að samtryggingarkerfið verði leitt til öndvegis ef alþingismenn ganga í sig og viðurkenna að sakfelling eins manns sé stílbrot í réttarríkinu.
Í grein Ögmundar Jónassonar í Morgunblaðinu í gær birtist valmenni, sem viðurkennir rangindin, sem Alþingi hefur vaðhaft í krafti meirihlutavalds og bendir á þá einföldu staðreynd að réttarhöldin draga athygli okkar að persónulegum hefndum en ekki uppgjöri við sjálf okkur og stjórnmálin.
Að þessum réttarhöldum fylgir ekkert annað en sundrung og alls enginn nýr dagur. Ég get alveg tekið undir með Karli biskupi að þetta er þjóðarsmán.
|
Uppreisn ef þingmenn styðja tillögu Bjarna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook


arh
asgerdurjoh
drsaxi
fhg
gudrunvala
hallibjarna
iceberg
kaffi
kreppukallinn
lehamzdr
oliskula
ragnar73
sabroe
skulablogg
stefangisla
undraland
bjarnihardar
bjarnimax
gattin
gp
zeriaph
helgi-sigmunds
disdis
holmfridurpetursdottir
jogamagg
rabelai
jonmagnusson
jonsnae
jonvalurjensson
kamasutra
krissiblo
maggadora
martasmarta
logos
siggifannar
siggisig
valdimarjohannesson
icekeiko


Athugasemdir
Flott lag og texti sem passa í nútímann Globaly
copy/paste
http://www.youtube.com/watch?v=LoWeOvlsSMc
ark (IP-tala skráð) 18.1.2012 kl. 18:15
Algjörlega sammála þér. Vel mælt og og ómar af drenglyndi. Ögmundur stekkur upp margar tröppur hjá mér. Margt smámennið berar sig svo í kjallaraopinu.
KHS, 19.1.2012 kl. 08:35
Góður pistill Sigurbjörn.
Kári tek undir, smámenni í kjallaraholum sem þrá myrkvavernd, en aðallega myrkur yfir eigin athafnir og ásetninga, því fæst af því þolir dagsljós.
Sólbjörg, 19.1.2012 kl. 11:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.