Fjölgun öryrkja er uppsafnaður vandi; stífla, sem er brostin

Þegar VIRK kom til sögunnar til að létta af lífeyrissjóðunum væntanlegum örorkuvanda og skjóta nýjum stoðum undir virkt vinnuafl, töldu margir að vænta mætti færri öryrkja og fleiri vinnufærra einstaklinga. Hugsanlega hefur þessum væntingum verið mætt að einhverju leyti. Það, sem við eigum hins vegar erfitt með að horfast í augu við, er að fjöldi fólks hefur verið að flækjast í Völundarhúsi VIRK í mörg ár, án þess að eiga nokkra von um að komast út úr því.

Nú er þessi stífla að bresta og því þarf að taka heiðarlega afstöðu til þeirra, sem eru í raun öryrkjar og samfélagið þarf að aðstoða til frambúðar.

VIRK hefur hjálpað mörgum, einkum yngra fólki, en aðrir hafa verið þar í biðsal. Þeiira bíður ekkert annað en varanleg örorka. Þessir einstaklingar eru nú að koma fram á línuritum, sem boða Harmageddon í augum sumra en raunveruleikann ótruflaðan í augum annarra. 

Þetta mun auðvitað ná jafnvægi en niðurstaðan verður, að VIRK mun ekki lyfta Grettistaki til fækkunar öryrkjum, heldur lengja vist þeirra í forgarði örorkumatsins og sía þá betur frá, sem eiga sér von í ólgusjó atvinnulífsins.

Það þarf að gæta þess, að þegar fyrrgreindu jafnvægi er náð verði VIRK ekki skjól sérfræðinga á hinum ýmsu sviðum heilbrigðis- og félagsvísndanna, heldur raunveruleg stoð þeirra, sem minna mega sín.


mbl.is „Þróunin getur ekki haldið svona áfram“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vandinn gæti verið sá , að ekki allir geta mætt fullkomlega kröfum vinnumarkaðar - og mætti þá láta reyna á samstarf við Atvinnurekendur um einhverja Aðlögun og umburðarlyndi ; einsog t.d. þjálfunartíma þannig að einstaklingar verði færir um að mæta þeim kröfum sem vinnumarkaður gerir .

Helgi Ásmundsson (IP-tala skráð) 14.1.2017 kl. 04:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband