"Þjóðin mun ráða"

segir VG.
mbl.is Trúi ekki að Samfylkingin láti stranda á ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Að sjálfsögðu á þjóðin að ráða.

Hilmar Gunnlaugsson, 22.4.2009 kl. 23:36

2 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Illa upplýstir frambjóðendur.

Svandís veit þó hvað hún er að tala um varðandi ESB aðildarumsókn. V-G,  Frjálslyndir og Sjálfstæðisflokkur gera sér grein fyrir því hvað ESB stendur fyrir.

Hinir flokkarnir nálgast ESB af fullkomnu þekkingarleysi og  ætla bara að prófa að ræða við risann og sjá til hvað hann býður. Hvar hafa þessir frambjóðendur haldið sig undanfarin ár? Hafa þeir ekkert fylgst með fréttum af spillingu og valdníðslu ESB? Hafa þeir ekki hlustað á gagnrýnisraddir almennings í aðildarlöndunum? Að halda það að ESB sé að bjóða íslendingum einstök kjör sem önnur ríki ESB geta ekki látið sig dreyma um, er álíka heimskulegt og að prófa að tala við Kínverja og bandaríkin og sjá til hvort að þessi ríki bjóði íslendingum einhverskonar aðildarsamninga sem eru gjörsamlega frábrugðin allri stefnu þeirra.

Það verður þokkalegt þegar að íslendingar verða kallaðir í ESB herinn sem rætt er um að stofna, og ekki veitir af Evrópuher eftir að Tyrkland er komið inn í ESB, því þá liggja landamæri hinnar sameinuðu Evrópu að Íran og Írak!

En hvað með það þó svo að íslendingar verði í framtíðinni að gegna herskyldu vegna fáfræði Framsóknaflokks Borgarahreyfingarinnar, Samfylkingarinnar og Lýðræðishreyfingarinnar? Við fáum þó Evru! En mun evran lifa kreppuna af?  Af hverju ekki að bíða með gjaldmiðlaskipti þar til að við erum búin að ná okkur upp úr botninum og heimskreppan gengin yfir? Þá væri upplagt að taka upp þann gjaldmiðil sem er hægt að treysta til framtíðar.

Guðrún Sæmundsdóttir, 23.4.2009 kl. 10:22

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Gleðilegt sumar.

Það skiptir öllu máli að fólk taki upplýsta ákvörðun.  Ábyrgðin er ekki bara stjórnmálamannanna heldur okkar að kynna okkur málin áður en við tökum afstöðu.  Stundum virðast menn sjá það sem þeir vilja sjá. Samningar Möltu við ESB eru ljósasta dæmið um þetta.  Stuðningsmenn aðildar tala um þessa samninga af aðdáun en hinir þ.m.t. undirritaður eru alls ekki upprifnir. 

Ef ég skil þetta rétt snúast samningaviðræður eingöngu um tímabundnar undanþágur.  Er einhver minnsti möguleiki á frávikum frá því?

Sigurður Þórðarson, 23.4.2009 kl. 12:54

4 identicon

Og hver er þín skoðun,  Sigurbjörn?

Líst þér á að við kúrum þæg og góð og "intet ondt anende" í kæfandi fangi Brusselveldisins?

Þar skal allt lúta einum vilja.  Þar er hin æðsta stétt.  Hátt yfir almenning hafin.  Búin fyrir löngu að glata sambandi við hið raunverulega líf fólks.  Reglugerðir, reglugerðir og reglugerðir eru hið æðsta afl.

Æ,  þá eru svo sannarlega dagarnir búnir að glata lit sínum - undir  reglugerðaóskapnaði.

Auður m (IP-tala skráð) 23.4.2009 kl. 22:20

5 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Ég hef í tvígang skrifað um þetta sérstaklega hér á blogginu Auður. Auk þess tók ég nýlega þótt í umræðu um sama efnio á síðu Hlédísar Guðmundsdóttur.

Sigurbjörn Sveinsson, 24.4.2009 kl. 09:39

6 Smámynd: Auður Matthíasdóttir

Gleðilegt sumar, Sigurbjörn.

Megi kosningarnar nú færa okkur það sem við þurfum á að halda. 

Kær kveðja

Auður

Auður Matthíasdóttir, 24.4.2009 kl. 23:15

7 identicon

Sæll Sigurbjörn.

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn..

 Já, ég held að við getum verið sammála um það að Þjóðin mun ráða. En enginn verður öfundsverður af því að takast á við það endurreisnarstarf sem verður næstu árin.

Og það verða margir sárir verkir sem að þjóðin mun verða vör við...held ég.

Góðar stundir.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 25.4.2009 kl. 00:38

8 Smámynd: Hlédís

Gleðilegt sumar og góðan kosningadag, ágæti Sigurbjörn!

Hlédís, 25.4.2009 kl. 00:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband