Lúpínan hefur víða orðið til góðs

Nokkrar kynslóðir Íslendinga verða að sætta sig við breytta ásýnd lands og lúpínuna. Þó ekki margar. Skógargróður tekur við af lúpínunni og það á alveg sjálfbæran hátt. Lúpínan myndar jarðveg og bindur hann um leið. Lyngbobbinn, þar sem völ er á honum, hraðar svo umsetningunni umtalsvert, þar sem hann étur bæði nýju lúpínuna og á vorin þá gömlu frá fyrra ári.

Lúpínan er fórnarkostnaðurinn til að halda jarðvegi og ryðja brautina fyrir uppgræðslu landsins. Lyngið og margvíslegar blómplöntur aðrar í vistkerfi þess eiga heima til fjalla en eru alltof veikburða til að varðveita landgæði okkar í byggð, hvað þá að bæta þau. 


mbl.is Óttast að lúpínan taki völdin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Datt þetta í hug um daginn á Mýrdalssandi blágrænum og fögrum:

Þótt kveði menn þann kalda dóm

hún klæði land í tötra

er lúpínan samt laglegt blóm

sem leggur sand í fjötra.

Gunnar S (IP-tala skráð) 5.8.2010 kl. 21:48

2 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Vel orkt - eins og við mátti búast.

Sigurbjörn Sveinsson, 5.8.2010 kl. 22:31

3 identicon

Og ég verð nú að segja ( ég hef þó  nein töluleg gögn til byggja á ) að mér hefur virst að lúpínan ryðji ekkei ú burt öðrum gróðri, heldur víki frekar undan þegar svo ber undir, en breiði úr sér í land sem annars er örfoka, og á endanum nái einnig annar gróður fötfestu í því landi fyrir tilverknað lúpínunnar. 

En ef mér skjátlast þá er til einföld leið að grisja lúpínuna, ef eitthvað er að marka sögu sem mér var sögð um einhvern landvörð í Skálafelli, þegar þar þurfti að grisja, hann opnaði eða fjarlægði enfaldlega fjárgirðingu sem átti að halda sauðfé úr viðeigandi spildu, og viti menn lúpínan hvarf eins og dögg fyrir sólu á einu sumri, síðan  var girðingin reist aftur, of það ku hvorki hafa sést sauðfé né lúpína í þjóðgarðsladinu síðan. En ég sel þetta svo sem ekki dýrara en ég fekk það á. 

Annars er ekki bara þessum lúpínuandstæðingum illa við bláa litinn, kannski bara allir einhvers konar laumukommar sem halda að allt sem er blátt hafi með sjálfstæðisflokkinn eða eittitthvað svoleiðis að gera 

Bjössi (IP-tala skráð) 6.8.2010 kl. 06:45

4 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ég er sammála.

Reyndar finnst mér Lúpínan bara nokkuð snotur. 

...og Bjössi, það eru til bleikar Lúpínur líka

fyrir þá vistrisinnuðu

Marta B Helgadóttir, 6.8.2010 kl. 14:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband