Ómálefnalegan munnsöfnuður

eins og lymskulegur, ESB-dindill, svikari, gabba, narra,  gamlir kommúnistar, ofurróttæklingar, refjar, ESB-þjónkun, má finna víða í Evrópuumræðunni. Þarf ekki að leita víða né í mörgum bloggum til að finna gildishlaðinn málflutning af þessu tagi og jafnvel í einu og sama blogginu eins og hér um ræðir. Svona orð dæma sig sjálf. Þau færa okkur frá kjarna máls, sem þó kann að vera einhvers virði. Svona lítilsvirðing við almenning, sem þó er verið að höfða til, er beggja handa járn svo vægt sé orðað og engum til sóma.

Það veldur enn meiri vonbrigðum þegar þessari aðferð er beitt í leiðaraskrifum virðulegra dagblaða, sem maður hefur borið hlýjan hug til. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þeir, sem dingla við Evrópusambandið fremur en að sýna lýðveldinu tryggð, og svíkja jafnvel land og þjóð fyrir erlent stórveldi, eru réttnefndir Esb-dindlar og svikarar -- ekkert ómálefnalegt við að nefna hlutina sínum réttu nöfnum.

PS. Veiztu ekki, að Árni Þór er gamall kommúnisti?

Jón Valur Jensson, 9.4.2012 kl. 15:23

2 identicon

Sæll Sigurbjörn, minn góði vin. Ég dáist að því að hve þú nennir hvað eftir annað að mæla með málefnalegum skoðanaskiptum. Uppskerð svo bara athugasemd eins og þessa. Aumingja maðurinn áttar sig auðvitað ekki á því að þú varst að ávarpa allt aðra sort og stappa stálinu í þá sem deila óbilandi trú þinni á málefnalega rökræðu, óháð því hvert málefnið er. 

Þér hefur svo sem áður verið svarað ósæmilega úr rökþröng, þú hrópandans rödd  úr Búðardal!

En það verður að segjast eins og er að virðuleikastuðull þíns gamla og löngum kæra málgagns hefur sigið óþægilega á köflum, svo ekki sé dýpra í árinni tekið, þótt stundum sé það fyndið.

Sandholt (IP-tala skráð) 9.4.2012 kl. 16:12

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Nafnaköllin eru á báða bóga Sigurbjörn, ekki reyna að gera eitthvað píslarvætti úr Evrópubandalagssinnum.  Ég bendi þér bara á málsvara þeirra hér á blogginu, sjálfskipaða og launaða.  Frá þeim eru kommentin persónuleg og meiðandi og án nokkurrar rökræðu.

Maður getur jafnvel nefnt biskupa þessa trúboðs í þessu samhengi eins og Eirík Bergmann, sem einatt líkir andstæðingum ESB við skinheads og nasista og gekk jafnvel svo langt að draga línu á milli heimóttalegrar ættjarðarástar og fjöldamorðingjans Breivik.

Þú gætir bætt málefnaumræðuna með því að sýna hlutleysi í umfjöllun þinni um þetta atriði eða allavega einhvern snefil af jafnræði.

Jón Steinar Ragnarsson, 10.4.2012 kl. 07:35

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég skil annars fullvel þennan bitra tón í máli þínu nú þegar evrópubandalagssinnar hafa gertapað malstað sínum á öllum vígstöðvum og gert sig að atlægi í Brussel með hálfsannleik og spuna eins og þegar Össur kýs að presentera fylgi við þjóðaratkvæði um málið sem fylgi við ESB. Auðvitað kemur slíkt í hnakkan á ykkur fyrr en seinna.

Jón Steinar Ragnarsson, 10.4.2012 kl. 07:39

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Jafnvel Samtök iðnaðarins hafa yfirgefið þetta sökkvandi evrusvæði.

Þeir vilja alls ekki ganga í Evrópusambandið. Gerbreytt ástand hjá SI miðað við könnun um málið árið 2007. Hvað segir Sigurbjörn um það?

Jón Valur Jensson, 10.4.2012 kl. 07:56

6 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Sem svar að hluta við athugasemdum ykkar vil ég birta pistil, sem ég skrifaði hér á bloggið fyrir 3 árum eða 2009:

"Ég hef haft takmarkaðan áhuga á að Íslendingar gerðust aðilar að Evrópusambandinu. Mér hefur sýnst Evrópusambandið bandalag gamalla þjóða, sem reist hafa verndarmúra umhverfis elliheimili sitt en brotið um leið innviðina, sem skilið hafa þær í sundur. Mér hefur þótt sem hagsmunum okkar yrði síður borgið innan þessara evrópsku múra en utan þeirra, þar sem færi gefst til skyndiaðlögunar að mismunandi mörkuðum og nota má krónuna eins og fljótvirkan þrýstijafnara í hagkerfinu. Að vísu hef ég haft góðan skilning á hinu pólitíska mikilvægi Evrópusambandsins fyrir þjóðir Evrópu í ljósi sögunnar. Sérstaklega varð mér þetta ljóst eftir að ég kynntist ungum Þjóðverja, sem tókst að horfa til framtíðar í sameinaðri Evrópu og sætta sig við fortíðina og þær hörmungar, sem áar hans höfðu leitt yfir Þjóðverja og aðra Evrópumenn.

Svo var það fyrir páska í fyrra, að ég skipti alveg um skoðun. Krónan hafði átt undir högg að sækja og öllum, sem það vildu sjá, varð ljóst, að verðmæti hennar var orðið rekald í tafli spákaupmanna m.a. af því tagi, sem við nú lesum um í fréttum. Og spákaupmennina var ekki bara að finna í útlöndum heldur í öllum kimum samfélags okkar. Bankarnir, fyrirtækin og lífeyrissjóðirnir okkar bröskuðu með krónuna, hvort heldur sem var í viðskiptum dagsins eða í framvirkum gjaldeyrissamningum. Mér sýndist þetta vonlaus staða og að Seðlabankinn og hagkerfið yfirleitt réðu ekki við kaupmennsku af þessu tagi. Krónan yrði alltaf dauðadæmd þegar ofurríkir fésýslumenn eða purkunarlaus fyrirtæki veldu hana til að kreista út gróða sinn. Krónan yrði að víkja.

Þess vegna tók ég afstöðu með Evrópusambandinu.

Ef einhver getur boðið mér nothæfa mynt án þess að Ísland fórni hluta fullveldis síns og yfirráðum auðlinda sinna, þá skal ég vera fyrsti maður til að hoppa þar um borð. Við eigum tæplega annað val en að kjósa evruna og Evrópusambandið."

Krónan heldur ekki nema með höftum og efnahagsstjórnin hefur verið slök og ekki spyrnt við fallvöltu gengi gjaldmiðilsins. Til þess að kóróna vitleysuna vilja stjórnmálamennirnir ríghalda í krónuna til þess sð geta reglubundið breytt yfir mistök sín við efnahagsstjórnina með því að ráðstafa auðnum frá einum til annars með þessum einfalda krana, sem krefst einskis annars en að skrúfa hann fram og til baka.

Þetta er ástand, sem er óviðunandi fyrir okkur, og krefst úrlausna, sem ekki eru í boði við óbreytt fyrirkomulag í stjórn efnahagsmála.  

Sigurbjörn Sveinsson, 10.4.2012 kl. 20:32

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Sigurbjörn, það er ekki mögulegt að fara inn í þetta Evrópusamband án þess að Ísland fórni AFGERANDI STÓRUM hluta fullveldis síns og yfirráðum auðlinda sinna. Lestu þessa grein til að byrja með: Esb. tekur sér alræðisvald yfir fiskveiðilögsögu milli 12 og 200 mílna!

Jón Valur Jensson, 11.4.2012 kl. 01:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband