Lögbrotin eru augljós og þarfnast ekki mikillar rannsóknar

Með ráðstöfunum í kjölfar hrunsins 2008 var girt fyrir kaup Íslendinga á erlendum gjaldeyri fyrir krónur til fjárfestinga erlendis nema með alveg sérstökum undanþágum. Jafnframt var fólki gert kleyft að standa við skuldbindingar sínar erlendis, sem það hafði samið um fyrir hrun. 

Er nokkur, sem andmælir þessu?

Erlend líftryggingafélög og umboðsmenn þeirra hérlendis héldu áfram að selja "líftryggingasamninga" sína, sem innihalda annars vegar líftryggingu (sem er þjónusta og heimilt að kaupa fyrir gjaldeyri) og hins vegar söfnunarlið, sem er sparnaður eins og t.d. séreign íslensku lífeyrissjóðanna  og á sér bakland í erlendum verðbréfum.

Með gjaldeyrishöftunum frá 2008 var óheimilt að selja Íslendingum gjaldeyri fyrir krónur til nýrra fjárfestinga erlendis. Það er alveg skýrt.

Þetta hafa hins vegar þessi erlendu tryggingafélög og umboðsmenn þeirra hérlendis gert í trássi við lög.

Hægt er að halda því fram, að samninga þessa hafi almenningur gert í góðri trú. Það er vafalítið rétt í mörgum tilfellum. Það er hins vegar mín skoðun, að þegar frá leið hafi margir áttað sig á hvernig þessum málum var háttað og að þessi viðskipti færu alfarið í gegn anda þeirra ráðstafana, sem gerðar voru 2008. Þrátt fyrir það hafi þeir kosið að halda þessum viðskiptum við og jafnvel stofnað til nýrra.

Það er vandinn, sem við er að fást í dag.    


mbl.is Grunur um brot á lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Það er "vandinn" sem við er að fást í dag er óraunveruleg einföldun á þeirri staðreynd að landið er tapað í glórulaust græðgis fyllerí.

Eyjólfur Jónsson, 25.6.2014 kl. 21:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband