Gróðrarstía fasisma og ofbeldis

Það þarf að segja þessu fólki, að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Evrópusambandið með Breta í broddi fylkingar séu að koma hér á fót nýju Weimar-lýðveldi, sem gæti orðið gróðrarstía fasisma og ofbeldis.
mbl.is Fjallað um mótmælin víða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Sammála.

Ævar Rafn Kjartansson, 22.1.2009 kl. 13:44

2 Smámynd: Þór Jóhannesson

Þetta er besta útskýring á stefnu Ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins sem ég hef heyrt í eins fáum orðum.

Þór Jóhannesson, 22.1.2009 kl. 14:21

3 identicon

Valdhafar her hafa synt íslensku þjóðinni þvilika óvirðingu að engu lagi er likt. Þetta hefur ekkert evropusambandið að gera.Rikisstjornin hefur logið að þjóðinni árum saman að her væri allt í góðu gengi þótt hun vissi betur.

Þetta mætti leggjast sem landráð og hefur komið islendingum í þvilik vandræði að engu er likt áður f.I Evropu er litið á ráðamenn her  sem fjárglæframenn þeir þurfa að fara frá völdum.

Árni Björn Guðjónsson (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 14:23

4 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Löggjöf frá ESB hefur tryggt margs konar réttarstöðu fólks gagnvart hinu opinbera. Þannig hefur sambandið tryggt mannréttindi og frið í álfunni innan sinna vébanda í meira en hálfa öld. Bretar eru ekkert í broddi fylkingar en þjóðverjar, frakkar, spánverjar, ítalir. Þetta er einhver ruglsamsetningur með það mótíf að hræða.

Gunnlaugur B Ólafsson, 22.1.2009 kl. 15:57

5 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Þetta á ekki við um afstöðuna til ESB í framtíðinni. Á við um þá þvingu, sem ESB tók þátt í að beita gegn okkur með skuldabagga, sem vandséð er, hvernig þjóðin mun ráða við. Íslandi var fórnað á altari reglufestunnar.

Sigurbjörn Sveinsson, 22.1.2009 kl. 16:09

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Mer sýnist Sigurbjörn, að nokkrir af þeim sem eru þér "ó svo sammála", séu menn sem kjósa flokka sem vilja senda IMF peninga til föðurhúsanna og lifa síðan á vergangi með Steingrím J sem forystusauð.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 22.1.2009 kl. 21:07

7 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Út úr hvaða hól kemur þú Vilhjálmur?

Sigurbjörn Sveinsson, 22.1.2009 kl. 22:11

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sjáðu til Sigurbjörn: 

Íslendingar vilja "góðu dagana" til baka. Þá er ekki hægt að fúlsa við peningum frá IMF og gerast útilegukindur eins og Steingrímur J. hefur í hyggju að leggja á þjóðina. Evrópusambandið er hins vegar allt önnur bóla, sem Íslendingar munu sjá eftir sáran, ef þeir ganga í þann ófögnuð.

Úr hvaða hól? Ég er ekki landeigandi á Íslandi. Ekki neinn flokksgæðingur, ekki heldur af fínu fólki kominn, svo ég viti til. Þar sem ég bý eru heldur engir hólar. En kannski þess vegna sé ég hlutina aðeins betur en þeir sem telja aðra komna út úr hól, líkt og þeir sjálfir.

Á Íslandi er ekket, verður ekki til neitt Weimar-lýðveldi. Íslensk pólitík er alveg íslensk, með smáafbrigðum, því Íslendingar vilja svo gjarna líkja sér við hinn stóra heim, til að fá staðfestingu á tilvist sinni og ímynduðu mikilvægi. En Imba Solla og Geir eru ekki Weimar-lýðveldið, og það er enginn Hitler sjáanlegur, nema þá helst týpur eins og Egill Helgason, sem er líka alíslenskar og þess vegna ekki afleysingarmenn þíns ímyndaða Weimar-Íslands.

Mér sýnist frekar að það sé eitthvað afbrigði af kommúnistískum fasisma á leiðinni eftir fyrirhugaðar kosningar, en það verður líka alíslenskt, eins og allt annað, og mun sökkva þjóðinni í enn dýpra fen. Þetta er allt ofar skilningi flestra annarra þjóða, eins og lætin út af engu á Íslandi nú. Íslendingar hafa það ekkert verr en margir aðrir.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 22.1.2009 kl. 23:03

9 Smámynd: Þór Jóhannesson

Vá - hvílíkar persónu persónu árásir á góðan og gegnheilan mann Egil Helgason. Segja allt um þann sem þar skrifar!

Þór Jóhannesson, 22.1.2009 kl. 23:48

10 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Við skulum tala um Stein og ástina á morgun í helgarmolanum.

Sigurbjörn Sveinsson, 23.1.2009 kl. 00:58

11 Smámynd: Árni Gunnarsson

"Þetta er allt ofar skilningi flestra annara þjóða, eins og lætin út af engu á Íslandi nú:"

Greinilega hefur annar hvor okkar Vilhjáms Arnar misskilið eitthvað fregnir af skilningi annara þjóða á ástandinu á Íslandi. Og líka hvað er ofar þeim skilningi. 

Árni Gunnarsson, 23.1.2009 kl. 19:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband