Helgarmoli: Á Tyrðilmýri

 Á Tyrðilmýri á Snæfjallaströnd vestur í Djúpi stendur gamla íbúðarhúsið enn, þó það sé komið á annað hundraðið. Það er þarna á fjörukambinum vestan við nýju húsin eins og afskipt hæruskotið gamalmenni í varpa, sem engar kröfur gerir, hvorki til fegurðarinnar né eilífðarinnar. Það hallar undir flatt upp í innlögnina nánast eins og fatlaður maður, sem skýtur öxlinni upp að vegg sér til hvíldar. Þannig hefur það verið síðan ég sá það fyrst fyrir hálfum öðrum áratug.  Það minnir á skakka turninn í Pisa, sem hefur hagrætt sér á grunninum og er ásamt dómkirkjunni og skírnarkapellunni á leiðinni út í á. Þar mun þessi þrenning lenda, ef tímarnir endast. En gamla húsið á Tyrðilmýri er á engri sérstakri vegferð og mun ekkert fara. Það bara er þarna og geymir sína sögu fyrir okkur.

Því minnist ég á þetta, að Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur, lauk upp Tímanum og vatninu fyrir okkur í Kiljunni fyrir nokkru. Þetta gerði hann svo snilldarlega, að nú er kvæðið eins og opin bók og allar flóknar vangaveltur um það hjómið eitt. Í gamla daga voru tveir vinir á ferð á milli staða suður í Gyðingalandi, þegar þriðji maðurinn slóst í för með þeim. Þegar heim var komið buðu þeir honum í bæinn og sagt er að hann hafi brotið brauðið og lokið upp ritningunum. Og augu þeirra opnuðust segir þar. Þannig var þessi kvöldstund með Guðmundi. Örstutt vegferð um Tímann og vatnið, sem gerði erfiði vegmóðra bókmenntafræðinga að engu. Þetta var eins og áningarstaður, þar sem þeir tóku á móti okkur, Guðmundur og Daníel heitinn læknir á Dalvík.

Hann gerði margt vel.    

Aðalsteinn Kristmundsson, síðar Steinn Steinarr og höfundur Tímans og vatnsins, fæddist á Laugalandi í Skjaldfannardal við Djúp. Hann var af bláfátæku fólki, sem átti ekki alltaf öruggt skjól í lífinu frekar en Steinn sjálfur. Steinn lifði við kröpp kjör lengst af sinni ævi og stundum við sára fátækt. Það var því ekki á vísan að róa, þegar hann varð ástfanginn ungur maðurinn í Reykjavík á árunum fyrir stríð. Utan af landi, skáld og lífskúnstner og jafnvel kommúnisti, með visna hönd. Ástfanginn af læknisdóttur?  Ekki sjens. Hann og Louisa Matthíasdóttir og Nína Tryggva voru vinir. Hann elskaði Louisu en Nína elskaði hann eða öfugt. Hvað vitum við um það?  En þær fóru báðar og Steinn sat eftir og endaði líf sitt í Fossvoginum.  Eftir situr heimslist og eilíf altaristafla í Skálholtsdómkirkju og Tíminn og vatnið á tungu, sem einungis örfáir sérvitringar í veröldinni skilja - og ekki einu sinni þeir.

Tíminn og vatnið er ástarljóð og við skulum vista okkur fyrir helgina með möndli þess, þegar skáldið gerir sér grein fyrir orðnum hlut og sættist við hann:     

 

"Í sólhvítu ljósi

hinna síðhærðu daga

býr svipur þinn.

 

Eins og tálblátt regn

sé ég tár þín falla

yfir trega minn.

 

Og fjarlægð þín sefur 

í faðmi mínum 

í fyrsta sinn." 

Úr Tímanum og vatninu e. Stein Steinarr, 15. liður.

 

Foreldrar Steins voru á Tyrðilmýri um skamma stund. Sú saga lifir í sveitinni, að þar hafi Steinn orðið til.  Í gamla húsinu, sem hallar sér til sólarlagsins og er ekki á neinni sérstakri vegferð.  Það er eins góð tilgáta og hver önnur. Allar sveitir eiga sín skáld. Nauteyrarhreppur á Höllu og Sigvalda Kaldalóns, Dalirnir eiga Jóhannes úr Kötlum, kennara Steins, og Stefán frá Hvítdal og mörg önnur. Steinn varð til og fæddist vestur við Djúp og því verður ekki breytt, frekar en að því verði breytt, að folald er kennt við þann stað, þar sem því er kastað.  

Listin lifir okkur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

                 Sæll Sigurbjörn!

         Kærar þakkir fyrir dásamlega hugvekju, sem vermir hjartað á

         umbrotatímum.

Svanur Kristjánsson (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 10:22

2 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Takk Takk.

Ég sé sólina flytjast um set í vornóttinni við mynni Djúpsins.

Takk Takk

miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 23.1.2009 kl. 10:48

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Svona getur maður af hendingu álpast inn í notalegan og nærandi hugarheim á þessum guðs-volaða samskiptamiðli.

Bestu þakkir.

Árni Gunnarsson, 23.1.2009 kl. 10:54

4 identicon

Afskaplega var gott að lesa þennan pistil.  Þekki Tyrðilmýri og var í sveit við Djúp sem barn.   Það er gott að hugsa um fallega staði og fögur ljóð og lög á þessum sundurlyndistímum.  Róar hugann.  Þakka fyrir góð skrif.

audurm (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 14:23

5 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Takk fyrir þá hlýju strauma sem fylgja þessari hugvekju þinni. Ég er fæddur í Nauteyrarhreppnum og gat því vel séð fyrir mér myndina sem þú varst að draga upp.

Notaleg lesning á þessum umrótstímum. Bestu þakkir og góðar framtíðaróskir. 

Guðbjörn Jónsson, 23.1.2009 kl. 15:49

6 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þakka þér Sigurbjörn.

Ég átti því láni að fagna að kynnast Etu móður Steins og er ríkari en margir

Heimir Lárusson Fjeldsted, 23.1.2009 kl. 17:11

7 identicon

Þakka þér fyrir fyrir þessa yndislegu augnabliksmynd af Snæfjallaströndinni.

Ósjálfrátt var ég kominn áratugi aftur í tímann og halla mér upp í innlögninga, hleyp síðan fyrir hornið á gömlu hlöðunni í Bæjum og garga; "Báturinn er að koma, báturinn er að koma." Og mér rennur í grun að kafteinninn sé Stjáni á Fagganum, (líklega er athugasemd nr. 1 hér að ofan frá syni hans). Hlaupið á bryggjuna til að hitta Stjána, hann er svo góður karl, tekur alltaf ofan sixpensarann fyrir manni þegar hann heilsar og kveður. Hlaupið um borð til Gumma kokks og sníkt sér Síríus súkklað síðan stokkið í land áður en það verður um seinan. Já þannig var nú það.

Jóhannes Bekk (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 18:37

8 identicon

Hvernig væri nú að þú skrifaðir eins og eina bók þar sem þú færir grundigt ofan í lífsgátuna og leystir hana?  Ég held ég treysti engum betur en þér til þess....

Tómas Örn (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 21:20

9 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Við gerum það saman dag einn, þegar sólar nýtur.

Sigurbjörn Sveinsson, 23.1.2009 kl. 22:34

10 identicon

Takk fyrir hugljúf skrif,sjálfur á ég ættir að rekja frá Bæjum á Snæfjallaströnd.Þaðan er föðurfólk mitt en því miður þekki ég lítið til þann arms ættarinnar.Mig langar til að benda þér á svona til gamans,að ljóððlínurnar sem þú byrtir að ofan, voru gefnar út á disk í mjög fallegri útgáfu frá Gimsteini.Þessi diskur sem umræður hér heitir ,, Svona er lífið ,,með tónlistarmanni sem heitir Siggi Guðfinns.(útgefin 1998.)Það er mannbætandi að lesa skrif þín Sigurbjörn.

Númi (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 00:35

11 Smámynd: Fjóla Björnsdóttir

Sæll Sigurbjörn,  og ástarþakkir fyrir yndislega færslu.

Fjóla Björnsdóttir, 24.1.2009 kl. 03:14

12 identicon

Ég er frá Tirðilmýri og í þessum gamla bæ lék ég mér löngum stundum.  Ég hef stolist til að líta þar inn þegar ég er á ferðinni því fjölskylda mín á ekki tilkall til bæjarins lengur.  Þarna er sama lyktin og var þegar ég var barn en núna er ekki þorandi lengur að fara upp á loftið með fallegu skarsúðinni.  Bræður mínir og frændi héldu þar eitt sinn listsýningu og sölu á vatnslitamyndum, ég reikna með að þeir hafi verið 11-12 ára þá.  Margir ferðamenn litu við og eitt og eitt verk var selt.  Einn bróðir minn reyndi að halda mér barninu, fjarri með því að mála á eina hurðina í húsinu "Aðeins fyrir drauga". Lengi vel þorði ég að fara þar fram hjá án þess að fara með allar bænir og sálma sem ég þekkti.  Takk fyrir þetta, þetta hús á skilið að þess sé minnst.

Salbjörg Engilbertsdóttir (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 09:09

13 identicon

Þarna ertu en kominn á flug. bróðir.

Ólafur Sveinsson (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 14:32

14 Smámynd: Stefán Gíslason

Þetta var nú virkilega vel skrifuð og þægileg lesning. Takk fyrir hana! Nóg er að óþægilegri lesningu...

Stefán Gíslason, 27.1.2009 kl. 12:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband