Niðurskurðurinn fagnaðarefni fyrir lækna

Loksins, loksins! Loksins verða mér skapaðar aðstæður eftir 30 ár í þjónustu ríkisins til að vinna á sömu skilmálum og aðrir launþegar þ.e. vitandi að morgni hvenær vinnutímanum lýkur að kvöldi. Nú veit ég að þjónustu minni við heilbrigðisráðherrann lýkur kl. 15:55 hvern dag og þá get ég gengið út af vinnustaðnum sáttur við guð og menn, hafandi greitt keisaranum það sem hans er. 

Skerðing dagvinnutekna um 12 % plús er  viðráðanleg upphæð, þegar hugsað er til þess, að fyrir hana fæst vel afmarkaður og vel skilgreindur vinnutími lækna annars vegar og betri hagur ríkissjóðs hins vegar.


mbl.is Óttast áhrif sparnaðar í heilsugæslunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Friðrik Thor Sigurbjörnsson

Þú verður þá að láta verða af því að ganga út kl. 16 og ekki orð um það meir. Þið megið ekki láta þetta verða eins og á Landspítalanum þar sem vinnutíminn er skilgreindur til kl. 16, sjaldgæft er að fólk komist út fyrr en nær kl. 17 og engin yfirvinnugreiðsla fæst, jafnvel þó læknir fari í bráða aðgerð kl. 15:00 sem stendur til miðnættis. Það er víst honum að kenna.

Friðrik Thor Sigurbjörnsson, 17.4.2009 kl. 11:41

2 Smámynd: Vaka Ýr Sævarsdóttir

Sammála Friðriki 

Er þetta þá eins konar nýtt vinnufyrirkomulag keisarans eins og nýju fötin?

Eiga læknar þá að ganga út kl 16 á eigin samvsiku og frá þeim skjólstæðingum og verkefnum sem bíða eða halda áfram á eigin kostnað?

Vaka Ýr Sævarsdóttir, 17.4.2009 kl. 17:48

3 identicon

Hann má fara kl. 15:55 og ekki orð um það meir.  Og sjúklingarnir geta bara beðið eftir honum þangað til næsta dag, eða eftir helgi. 

EE elle (IP-tala skráð) 18.4.2009 kl. 00:22

4 Smámynd: Hlédís

Vaka Ýr!

Velkomin í mogga-bloggið! Ég náði að verða 1. gesturinn! 

Það verður að ráða einhvernvegin fram úr vinnutímavandanum. Enginn starfsmaður, læknir né annar, er alltaf á vinnustað.  Varla verður farið verr með lækna nú en eldri læknar fóru með unglækna 1968 (held að ártalið sé rétt!) Það var í alræmdum kjarasamningum, er læknar sömdu af sér eftirlaunarétt ríkisstarfsmanna og fleira, fyrir hækkuð laun ELDRI lækna. Þá voru engir ungir læknar í samninganefnd. Samið var um að vinnuvika yngri lækna yrði 50 - fimmtíu stundir, sem þýddi rúmlega 40 stunda skerðingu yfirvinnulauna á mánuði. Tala ekki um vinnutímalengd, nema hvað helgarvaktir, oftast þrískiptar, stóðu frá kl 8 á laugardegi til dagvinnuloka á mánudegi. Er ekki að mæla með þessu :) -  man að unglæknar á slysadeild vissu stundum varla hvað þeir hétu sjálfir. Þeir voru 4, hámark 5 alls - með einn alvörufrídag í mánuði! -

'Those where the days my friends'-   

Hlédís, 18.4.2009 kl. 00:39

5 identicon

Ósköp ertu ómerkilegur Sigurbjörn.

Hættu að skrifa og reyna að gera þig merkilegan.

Árni Jónsson (IP-tala skráð) 18.4.2009 kl. 06:16

6 identicon

Gefum Árna gott klapp og óskum honum til hamingju með að vera heilsteyptur og lífsglaður einstaklingur...

Tómas Örn (IP-tala skráð) 18.4.2009 kl. 08:43

7 identicon

Get ekki lesið neitt í pistlinum sem passar við ´comment´no. 5. 

EE elle (IP-tala skráð) 18.4.2009 kl. 10:10

8 Smámynd: Finnur Bárðarson

Hverslags athugasemd er þetta eiginlega Árni Jónsson ? Það eru greinilega aðrir sem ekki ættu að vera að skrifa.

Finnur Bárðarson, 18.4.2009 kl. 11:00

9 Smámynd: Hlédís

Segi sama og EE elle. Hvert sótti  ÁrniJ tilefni til þessarar stóru yfirlýsingar?

Hlédís, 18.4.2009 kl. 13:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband