Næturvörðurinn

Handan við þilið

er næturvörðurinn.

Þarna hefur hann verið

um kynslóðir.

 

Hann lýsir skotið sitt

með grútartýrunni,

þannig að ætíð er dagljóst.

 

Enn í dag.

 

Mjúkir stafir

fylla rúnir tímans.

 

Ef til vill örlítil birta

ofan af Íslandi.

 

Það er ekki allt framfarir

sem svo er kallað,

sagði séra Matthías.

 

(Amsterdam 2009)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Pétursdóttir

Svona blogg eru skemmtileg. Nú ertu búinn að senda mig ínn í Gúglheima að skoða Næturvaktina eftir Rembrant, svo fór ég að skoða myndina yfir blogginu, hún er eins og Næturvaktin hafi verið klippt sundur og sett öðruvísi saman.

Framfarir hafa enn ekki farið fram úr niðurlendingunum í því að mála ljósið.

Hólmfríður Pétursdóttir, 11.5.2009 kl. 21:07

2 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Þau eru góð ljóðin þín Sigurbjörn.

Hilmar Gunnlaugsson, 13.5.2009 kl. 01:53

3 identicon

Svo er fyrri hluti þessa ljóðs góður
að það á allt annað betra skilið en þennan
arfaslaka seinni hluta.

(Leipzig, 14. 5. 2009)

Húsari. (IP-tala skráð) 14.5.2009 kl. 17:31

4 identicon

Fyrri hlut ljóðsins er góður og framandi.  Ósammála no. 3: Seinni hlutinn ekki verri.

(IS 105)

EE elle

. (IP-tala skráð) 14.5.2009 kl. 23:00

5 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Ég þakka fyrir athugasemd Húsarans. Það er alltaf gaman að fá krítik eða a.m.k.  viðbrögð. Þó ég sé ekki að jafna mér saman við Jónas, öðru nær, þá þurfti hann að þola bollaleggingar vina sinna, Fjölnismanna, um kvæðin sína og stundum voru gerðar breytingar á þeim þ.e. fengin einhvers konar lýðræðisleg niðurstaða þó Konráð reyndist jafnan frekastur. 

Niðurlagið í þessu ljóði er að formi og innihaldi alveg öndvert við fyrri hlutann. Það skal fúslega viðurkennt. Ég spurði einhverju sinni kunningja minn, sem er vellátinn listamaður, hvað orðið hefði um mót ljóss og myrkurs, skuggann,  í íslenska málverkinu. Hann svaraði því til að sennilega hefði rafmagnið gengið frá honum.

Þannig má segja að ég hafi náð markmiðum mínum með viðbrögðum Húsara. Það má líka vera að fyrri hluti ljóðsins eigi betra skilið en þessa hörðu lendingu. Það mun ég breyta því með hjálp vina minna eins og Jónas forðum. 

Sigurbjörn Sveinsson, 17.5.2009 kl. 08:30

6 identicon

Þeir eru ófáir læknar sem skrifað hafa merkar
bækur í gegnum tíðina.
Flestar lifa góðu lífi enn í dag vegna þess
að efni þeirra var óháð tíma og rúmi.
Ég þykist sjá að Sigubjörn Sveinsson muni
fylla þennan hóp innan tíðar.
Ég hlakka til þess dags er bók hans lítur
dagsins ljós, - en gleymdu samt ekki okkur sem
hlotið hafa nóttina og myrkrið að förunauti!

Húsari. (IP-tala skráð) 17.5.2009 kl. 23:22

7 identicon

Það eru greinilega fleiri sem hafa farið í frí eftir kosningar en ríkisstjórnarflokkarnir..

Tómas Örn Sigurbjörnsson (IP-tala skráð) 20.5.2009 kl. 22:54

8 identicon

Þetta er allt með ásetningi svo við fáum frekar skynjað áhrif ljóss og skugga, nærveru og fjarveru og þess sem í milli ber! -

Ég er að vona að Sigurbjörn skrifi um sýningu Errós Í Hafnarhúsinu þegar þar að kemur en hún verður opnuð 28. maí.

En það er mögnuð færsla sem bíður okkar! Og hver sekúnda er þess virði að
að taka biðinni með ró og spekt.

Húsari. (IP-tala skráð) 21.5.2009 kl. 01:20

9 identicon

Og þó endirinn hafi komið eins og skuggi af heiðum himninum, var það ekki vont, heldur öðruvísi.

EE elle (IP-tala skráð) 22.5.2009 kl. 00:49

10 identicon

Þú ert mikið og gott ljóðskáld, nafni.  Til hamingju með það.  Haltu endilega áfram.  Bestu kveðjur.

Sigurbjörn Þorkelsson (IP-tala skráð) 22.5.2009 kl. 01:24

11 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Maður nokkur var tekinn undir stýri fyrir að vera í annarlegu ástandi. Þetta var fyrir bráðum hálfri öld og væri ekki í frásögur færandi, ef maðurinn hefði ekki gefið þá skýringu sér til afsökunar að hann væri að koma af málverkasýningu, sem hefði haft þessi áhrif á hann. 

Þetta var fyrsta einkasýning Errós, sem þá hét Ferró.

Þeim, sem séð höfðu sýninguna, þótti þetta lögmæt afsökun hjá manninum.

Sigurbjörn Sveinsson, 22.5.2009 kl. 15:12

12 identicon

Þetta kalla ég að slá sjö flugur í sama höfuðið og
öll hin líka!! Bestu þökk!

Húsari. (IP-tala skráð) 22.5.2009 kl. 21:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband