11.2.2009 | 22:30
Stefán Gíslason: Blogg án skugga
Bloggið hans Stefáns Gíslasonar í dag um vísurnar hans Svantes með athugasemdum á athygli skilda. Þar sitja menn á siðaðra hjali við mannbót, ef svo má að orði komast og gefa dæmi um, hvernig bloggið getur verið uppbyggjandi dægradvöl í stað suðsins í haugflugunum, sem aldrei láta sig vanta og enginn veit hvaðan koma. Það er líka laust við að vera rop þeirra, sem aldrei heyrist í nema í þá sé potað.
Svona geta orðið til lítil sköpunarverk á blogginu frá allra hendi, ef fólk gefur sér smá tíma og telur upp að tíu áður en það lætur frá sér óhreinindin.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.2.2009 kl. 09:18 | Facebook
Athugasemdir
Það er munur á uppbyggjandi umræðuefni og innihaldi hjá Stefáni heldur en þeirri hringiðu óra sem sumar athugasemdirnar sem birtast á bloggsíðu Margrétar St. Hafsteinsdóttir, 160 álit. Hún var dugleg að svara.
Það er von að sumir vilja koma fram undir nafnleynd, öðru hverju.
Hvert eru menn komnir?
Ólafur Sveinsson (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 10:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.