Í Brimnesi

 I.

Þegar ég gekk í hús þitt,

þá fann ég ekkert nýtt.

Alla klassíkina

hafði ég fyrir löngu lifað.

Vívaldí og vinirnir allir

voru þarna á sínum stað.

 

Í sprungnum veggjum hússins

ómaði hjal barna minna,

og sporin sá ég,

sem þau stigu í bernsku sinni.

 

Þá minntist ég meistarans,

sem fóstraði hugsunina

í faðmi trúarinnar:

 

"Endurtekningin er ekki til."

 

En úti fyrir

hafði blær vorsins

hrifið burt gamlan kunningja.

Fönnin skildi eftir benjar

í gróandanum.

 

Sköpunin er endurtekning alls.

 

(6. júní 1989)

 

II.

Ég settist niður

til að semja ljóð

eins og síðast.

En ljóð er ferðalag

frá einni hugsun til annarrar

eins og allir vita.

 

Og sálin náði ekki fluginu.

 

Hún var föst í möskvum gærdagsins,

neti persónulegrar reynslu.

Sú reynsla venjulegs manns

eins og mín

er bæði hversdagsleg

og alþýðlega óspennandi.

 

Það hefðu orðið örlög þess ljóðs

að vera kastað

á ruslahauga borgaralegrar menningar.

 

(2. desember 1990)

Höfundur var læknir í Búðardal með hléi frá 1978 til 1988. Hann bjó í Brimnesi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þarna var það...

Tómas Örn Sigurbjörnsson (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 10:27

2 identicon

Hefur höfundur athugað það að fara að gefa út ljóðabók.?Skora á þig,þú ert snillingur,það er nú bara svo.

Númi (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 14:56

3 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Takk!

Sigurbjörn Sveinsson, 6.3.2009 kl. 15:11

4 identicon

Yndislega fallegt, þetta snerti við mér. Takk.

Ína (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 17:41

5 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Mjög flott.

Hilmar Gunnlaugsson, 6.3.2009 kl. 18:00

6 identicon

Mig langar að skilja eftir athugasemd. En ég er orðlaus.

Ásta Sóllilja (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 20:25

7 identicon

Sæll Sigurbjörn.

Þarna er svo sannarlega farið á flug.

Mjög gott. flott og skemmtilegt.

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 7.3.2009 kl. 16:52

8 identicon

skemmtilegt

runni (IP-tala skráð) 12.3.2009 kl. 12:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband