29.1.2015 | 16:39
ASÍ veifaði röngu tré, segir Viðskiptablaðið
Nú er það komið fram, sem sagt var hér í síðasta bloggi, að ASÍ fer með staðlausa stafi, þegar því er haldið fram að íslenskir læknar hafi haft rangt við í kjarabaráttu sinni og gefið falskar upplýsingar um laun sín í sambanburði við starfssystkyni á hinum Norðurlöndunum m.a. Svíþjóð.
ASÍ veifar dagvinnulaunum sænskra lækna til samanburðar við heildartekjur íslenskra lækna og kemst að þeirri niðurstöðu að þessir hópar séu á svipuðum launum. Það er plagsiður hér á landi að upphefja sig með því að níða aðra og er því nú beitt af hálfu verkalýðshreyfingarinnar gagnvart læknum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:42 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.