23.2.2016 | 14:12
Tímabært niðurrif álveranna
Álverið í Straumsvík er barn síns tíma. Það er löngu afskrifað. Ef til vill er vægi áliðnaðarins í efnahagslífi Íslendinga einnig barn síns tíma. Stóriðja á Íslandi mun vafalítið líða undir lok í náinni framtíð. Grófur, mengandi, orkufrekur iðnaður fellur illa inn í þær hugmyndir, sem núlifandi kynslóðir Islendinga gera sér um landgæði og nýtingu náttúrunnar í framtíðinni.
Það er upplagt að hefja þessa vegferð með því að rífa álverið í Straumsvík.
Vill að forsætisráðherra fordæmi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll Sveinbjörn, en við getum nú notað orkuna í brotajárnsbræðslu sem væri auðvitað búbót fyrir okkur og einnig í nýja sementverksmiðju til að steypa alla vegina í landinu og losna þá við óþverrans malbikið. Steyptur vegur heldur sér í minnst 50 ár áður en einhver endurnýjun ætti að þurfa, en bara að fræsa öðru hvoru er alveg nóg. Áburðarverksmiðju mætti líka bæta við!!!
Eyjólfur Jónsson, 23.2.2016 kl. 20:59
Renna ekki einhverjir samningar út tengt rafmagnssölu til Straumsvík í kringum 2020? þá mætti loka þarna.
Öðru máli gegnir um áverið fyrir austan; sem er nokkuð nýlegt; varla væri ráðlagt að loka því.
Jón Þórhallsson, 24.2.2016 kl. 10:26
Það er tímabært að gera áætlun um sólarlag áliðnaðarins á Íslandi. Sú áætlun mun að sjálfsögði taka yfir áratugi og miða m.a. við þá orkusölusamninga, sem gerðir hafa verið og aldur álveranna.
Sigurbjörn Sveinsson, 24.2.2016 kl. 11:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.