Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009
17.7.2009 | 10:16
Enn gengur Agnes erinda útgerðarmanna og eigenda Mbl.
Þorgerður sýndi þrek og þor í gær. Formanninum vafðist hins vegar tunga um höfuð og var augljóst að munnurinn mælti ekki af gnægð hjartans. Það er skömm að þeir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem eru í raun fylgjandi aðildarumsókn, skildu ekki fylgja sannfæringu sinni að frágengnum breytingatillögunum. Skagamaðurinn úr Mosfellssveitinni fór þar aðrar leiðir.
Staða Þorgerðar Katrínar veikist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.7.2009 | 14:47
Raunsæið af skornum skammti hjá stjórnarandstöðunni
Forusta VG hefur sýnt verulega þrautseigju og úthald í gífurlega erfiðu máli og tekið þá lýðræðislegu afstöðu, að þjóðin fái tækifæri til að taka afstöðu til ESB þegar efnisatriði samnings liggja fyrir. Baráttan um ESB-aðild verður þá vonandi málefnaleg en ekki byggð á hindranaleik eins og amrískur fótbolti.
Staða Sjálfstæðisflokksins verður sorglegri með hverjum deginum og tímabært að hugsa sér til hreyfings.
Samþykkt að senda inn umsókn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.7.2009 | 14:05
Varðar árina og ræðarann
Leiðin að Olympíuleikvanginum í Barcelona lá um langar brekkur og þótti flokka hafrana frá sauðunum. Engin tillaga kom fram um að haga þessu öðruvísi né að jafna brekkurnar.
Ósátt við skipulag hlaupsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)