3.8.2013 | 09:54
Ég get tekið undir með þessum unga lækni
sem skrifar á Snjáldru í tilefni greinar Sigurðar Guðmundssonar og Einars Stefánssonar í Morgunblaðinu í gær:
"
Ég er nú frekar seinþreyttur til vandræða. En ég er kominn með nóg af því að stjórnendur LSH tali undir rós um stöðuna í heilbrigðiskerfinu. Orð eins og "... í hópi ríkja sem við viljum ekki bera okkur saman við" og "stefnir í óefni".
Eigum við ekki bara að segja sannleikann? LSH er óaðlaðandi vinnustaður, fyrir allar stéttir. Álagið er mikið, húsnæðið er algerlega úr sér gengið, nánast ónýtt og fyrir löngu orðið algerlega úrelt. Áttum okkur á því að gjörgæsla LSH á Hringbraut, þar sem vistaðir eru sjúklingar sem hafa undirgengist gríðarlega stórar aðgerðir á brjóst og kviðarholi og fárveik börn, er í húsnæði sem var byggt á árunum 1926-1930.
Tækjabúnaður sjúkrahússins er gamall og lúinn. Til að mynda er meðalaldur tölva á LSH um 8 ár. 8 ÁR!!!
Stöður lækna eru í síauknum mæli fylltar með nemum, sem ekki hafa reynslu eða þekkingu til að standa á eigin fótum inni á sjúkrahúsinu þar sem þarf að taka erfiðar ákvarðanir oft á dag. Það á enginn læknanemi skilið að vera settur í þá aðstöðu að ráða ekki við aðstæður og hafa lítið "bakköpp" að leita til.
Upp á síðkastið hefur verið erfitt að fá teknar röntgenmyndir á sjúkrahúsinu. Mönnum er tíðrætt um öryggi sjúklinga. Sjúkrahús sem ekki getur tryggt að hægt sé að taka einfalda röntgenmynd af sjúklingum á gjörgæslu, bráðamóttöku eða af almennum deildum, getur með engu móti haldið því fram að öryggi sjúklinga sé tryggt.
Vinnuveitandi sem stendur endurtekið í deilum við starfsfólk um kaup, kjör og vinnuaðstæður hlýtur að þurfa að líta í eigin barm og bregðast við. Það hefur verið lítið um slíkt.
Og heilbrigðiskerfið er víðar en á LSH.
Það er ekki óalgengt að fólk þurfi að bíða jafnvel í meira en viku eftir tíma hjá heimilislækni. MEIRA EN VIKU!! Heimilislæknar og heilsugæslustöðvar eru framvarðasveit hvers heilbrigðiskerfis. Heilsugæslan hefur verið fjársvelt og er, eins og heilbrigðiskerfið allt, í molum.
Heilbrigðiskerfið er fyrir löngu komið fram af öllum brúnum og þverhnípum. Öryggi sjúklinga er ekki tryggt. Starfsfólk er óánægt, þreytt, starfar við algerlega ófullnægjandi aðstæður og er undirlaunað. Sjúklingar hafa ekki þann aðgang að heilsugæslu sem þeir ættu að hafa. Fráflæði frá bráðadeildum sjúkrahússins er allt of hægt. SJúklingar þurfa oft að eyða mörgum klukkutímum á bráðamóttöku sjúkrahússins í bið eftir rúmi. Þessi bið er oft lengri en 12klst.
Það sem er svo verst, er að þeir sem á endanum bera ábyrgðina, stjórnmálamenn, hugsa ekki lengur en í mesta lagi eitt kjörtímabil. Það sést best á nýlegum ummælum formanns fjárlaganefndar um að það "sé ekki eitt einasta vit í að byggja nýjan Landspítala núna". Og ástæðan er sú ekki eru til peningar.
Það er því athyglisvert að alltaf eru til milljarðar á milljarða ofan til að bjarga hinum og þessum fjármálastofnunum, óháð þjóðhagslegu mikilvægi (sbr SpKef).
Ég leyfi mér að halda því fram að engin stofnun er jafn þjóðhagslega mikilvæg og LSH, og raunar allt heilbrigðiskerfið. Heilbrigði þjóðarinnar hefur verið nokkuð gott, mæðradauði er sjladgæfur, ungbarnadauð er með því lægsta sem þekkist, langlífi þjóðarinnar er jafnfram vel þekkt. Það er ekki spurning um hvort, heldur hvenær heilsu þjóðarinnar hrakar vegna niðurskurðar í velferðarkerfinu.
Ég skora á leiðtoga þjóðarinnar að taka sjálfa sig til alvarlegrar endurskoðunar og spyrja sig hvort þeir valdi störfum sínum. Of lengi hafa varnaðarorð heilbrigðisstarfsfólk hljómað fyrir daufum eyrum. Það er margbúið að tyggja það ofan í Alþingi, og þjóðina alla, að heilbrigðiskerfið geti orðið fyrir óbætanlegum skaða. Nú er heilbrigðiskerfið mjög alvarlega laskað, stórslasað og berst fyrir lífi sínu. Nú er ekki tími til að hugsa sig um og pæla í hlutunum. Nú þarf aðgerðir. Nú þarf steypu, bæði fyrir nýtt sjúkrahús og fyrir háttvirta Alþingismenn sem þurfa heldur betur að herða sig og girða í brók."
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2024
- Nóvember 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Október 2019
- Maí 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Janúar 2018
- Ágúst 2017
- Júní 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Ágúst 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
Bloggvinir
- arh
- asgerdurjoh
- doggpals
- drsaxi
- fhg
- gudrunvala
- hallibjarna
- iceberg
- jorg
- kaffi
- kreppukallinn
- lehamzdr
- oliskula
- ragnar73
- sabroe
- skulablogg
- stefangisla
- undraland
- formosus
- bjarnihardar
- bjarnimax
- gattin
- gp
- zeriaph
- garmur
- helgi-sigmunds
- drum
- disdis
- holmfridurpetursdottir
- jogamagg
- rabelai
- jonmagnusson
- jonsnae
- jonvalurjensson
- kamasutra
- kjarri
- krissiblo
- kristjan9
- maggadora
- martasmarta
- logos
- siggifannar
- siggisig
- unnurgkr
- valdimarjohannesson
- vilhjalmurari
- icekeiko
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
þEIR SEM HAFA PENINGA FARA TIL ÚTLANDA EF ÞEIR VEIKJAST- HINIR FÁ AÐ SJÁ UM AÐ FARA YFIR MÓÐUNA MIKLU- EN ÞAÐ ER ERFITT FYRIR KRISTIÐ FÓLK AÐ NÚ ER SLEIKJUSKAPURINN VIÐ ÖNNUR TRÚARBRÖGÐ EN KRISTI ORÐINN SLÍKUR AÐ BÚIÐ ER AÐ SLÍTA KROSSA AF LIKBÍLUM- HRINGIÐ BARA Á SENDIBÍL !!!!
Erla Magna Alexandersdóttir, 3.8.2013 kl. 18:52
Illa launuð um-sjá,að fara yfir móðuna miklu!!! En því ákafar sem hamast er gegn kristni,því staðfastari erum við i trúnni og förum virkilega að snúa okkur til kirkjunnar og njóta starfs safnaða þeirra.
Helga Kristjánsdóttir, 4.8.2013 kl. 05:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.