Andi sjálfboðaliðastarfsins hefur skapað kröftugar björgunarsveitir

Mikilvægt er, að starfsemi og starfsumhverfi björgunarsveitanna haldist í meginatriðum óbreytt. Þær þurfa að halda sjálfstæði sínu og sjálfboðaliðarnir upplifa frumkvæði sitt og árangur við björgunarstörf. Jafnframt er mikilvægt að ungir sem gamlir hafi ánægju af æfingum og viðhaldi búnaðar. Við þurfum að standa öll að baki þeim við þessa iðju.

Það er ekki ofsögum sagt, að björgunarsveitirnar okkar koma í stað herja í öðrum ríkjum. Er hlutskipti okkar gott að því leyti. Það versta sem gæti gerst er að hin dauða hönd opinberra afskipta dragi máttinn úr þessu merkilega framlagi hins almenna borgara til samfélagsins. Það ber að forðast.  


mbl.is Björgunarsveitin ódýrt vinnuafl?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband