9.2.2009 | 20:39
Prik handa VG
VG hamaðist gegn þessu ákvæði á sínum tíma. Það var auðvitað afgreitt eins og hvert annað vinstra nöldur. Það var eftir öðru.
Það er skaði, að skynsemin hafi ekki fengið að ráða meiru um okkar örlög.
Varaði þingforseta við stjórnarskrárbrotinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2024
- Nóvember 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Október 2019
- Maí 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Janúar 2018
- Ágúst 2017
- Júní 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Ágúst 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
Bloggvinir
- arh
- asgerdurjoh
- doggpals
- drsaxi
- fhg
- gudrunvala
- hallibjarna
- iceberg
- jorg
- kaffi
- kreppukallinn
- lehamzdr
- oliskula
- ragnar73
- sabroe
- skulablogg
- stefangisla
- undraland
- formosus
- bjarnihardar
- bjarnimax
- gattin
- gp
- zeriaph
- garmur
- helgi-sigmunds
- drum
- disdis
- holmfridurpetursdottir
- jogamagg
- rabelai
- jonmagnusson
- jonsnae
- jonvalurjensson
- kamasutra
- kjarri
- krissiblo
- kristjan9
- maggadora
- martasmarta
- logos
- siggifannar
- siggisig
- unnurgkr
- valdimarjohannesson
- vilhjalmurari
- icekeiko
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
.
Menn hefðu kannski betur lagt við hlustir og tekið mark á því sem þeir í VG hafa sagt unanfarin ár.
Þetta er ekki það eina sem hefur verið afgreitt sem nöldur og tuð en reynist svo rétt vera þegar upp er staðið.
101 (IP-tala skráð) 9.2.2009 kl. 22:47
Merkilegt. Ekki eru nú mannréttindi í hávegum höfð þarna innan hins háa yfirvalds okkar þegar ekki er hlustað á góð rök. Lof fyrir dómarann.
EE elle
EE (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 05:49
Já það er virkilegur skaði fyrir þessa þjóð að skynsemin hafi ekki fengið að ráða síðastliðin 18 ár. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ásamt Framsóknarflokknum skaðað þjóð sína meira en orð fá lýst. Það er einnig sorglegt að vegna þess að við íslendingar erum í lið og tökum hollystu við flokka fram yfir ást okkar á vorri þjóð að svona er komið, við erum ekki til í að refsa þeim sem hafa staðið sig illa. Ég kaus einu sinni Sjálfstæðisflokkinn, en hann hefur skaðað þessa þjóð og orðspor okkar meira en nokkur annar, og þess vegna spyr ég þig, hvernig geturðu fundið það í hjarta þínu að halda áfram að styðja við skaðræðið?
Valsól (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 07:40
Góður punktur að ofan no 3. og skítt með alla flokka. Þurfum að geta kosið persónur, ekki flokka.
EE (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 07:55
Eins og ég hef bent á áður þá hafa meginmarkmið Sjálfstæðisflokksins haft mikla þýðingu fyrir stjórnmál á Íslandi og félagslega þróun. Þau hafa líka haft mikla þýðingu fyrir þróun atvinnumála og haft áhrif á hagsældina til góðs. Ekki kvörtuðum við um aldamótin þegar hér var allt í blóma og ekki óveðursský á lofti.
Þá var því miður í farvatninu breyting til hins verra, því þegar saman fara fé og völd, sérlega þau, sem lengi hafa staðið og ekkert virðast þurfa að óttast, þá fer venjulega illa og rotnunin verður innan frá. Það kennir sagan okkur. "Það þarf sterk bein til að þola góða daga" er ekki út í bláinn sagt.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur mikilvægt hlutverk í framtíð íslenskra stjórnmála. Ég á bágt með að sjá skýrar átakalínur án hans. En til þess að það geti orðið, þá þarf hann að fara í gegnum hreinsunareld endurskoðunar og endurnýjunar og þola mótlæti stjórnarandstöðunnar lengur en þá 80 daga sem nú eru framundan.
Sigurbjörn Sveinsson, 10.2.2009 kl. 09:43
Ég vona að vinstri stjórn taki við landinu eftir kosningar því við getum alveg sleppt því að búa hérna annars. Ef unga barnafólkið okkar verður hrakið úr landi og fólksflótti verður mikill, hverjir eiga þá að standa undir öllum skuldunum og kosnaðinum við þjóðfélagið? Kaus einu sinni Sjálfstæðisflokk en mun aldrei gera það aftur.
Ína (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 10:18
EE --> Ef kosið er um persónur en ekki flokka verður hver höndin upp á móti annarri í þinginu og ekkert kemst í verk þar sem engir koma sér saman um nokkurn skapaðan hlut. Nema þá að þingmenn myndi sín á meðal bandalög... sem síðan verða flokkar...
Það er ekki á kjánaganginn í Alþingishúsinu bætandi. Að kjósa persónur en ekki flokka held ég að sé glapræði.
Friðrik Thor (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 11:00
Meginstraumar viðhorfanna í samfélaginu verða að skipuleggja sig hverju sinni. Hvort sem það heita flokkar eða e-ð annað. Óhlutbundin kosning til Alþingis er ekki raunhæft markmið. En þessir "flokkar" mættu verða sveigjanlegri en nú er. Það mætti gjarnan vera meiri endurskipulagning og gerjun fyrir hverjar kosningar. Og kjósandinn ætti að hafa meiri möguleika á að raða á listana en nú. Það er grundvallarkrafa.
Flokkar, sem steyptir eru í sama mót áratug eftir áratug hljóta að bera í sér uppdráttarsýki eins og komið hefur á daginn.
Sigurbjörn Sveinsson, 10.2.2009 kl. 12:03
Friðrik Þór: Já, ábyggilega er það satt. Hinsvegar vil ég geta valið um fólk þannig að það skipti máli í flokkunum/hópunum, kannksi eins og í Bandaríkjunum.
EE elle
EE (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 12:51
Þú meinar þá að þú vilt hafa prófkjör til að ákvarða stöðu einstaklinga innan flokka?
Annars er það Thor.
Friðrik Thor (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 13:46
Friðrik Thor (fyrirgefðu, það var óvart)
Ég veit ekki hvort ég get lýst þessu þar sem ég er ekki nógu mikið inni í pólistísku skipulagi. Nei, ég meina ekki prófkjör heldur að fólk geti merkt við vissa einstaklinga í kosningunum sjálfum og þannig raðast þeir niður í vægi, ja innan flokka/hópa/lista, samkvæmt atkvæðafjölda, kannski í þeim dúr sem Sigurbjörn meinar að ofan, í no 8.
EE elle
EE (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 15:00
Kannski vantaði þarna inn í að það er fólkið sem raðar niður í vægi, ekki pólitíkusar flokka.
EE elly
EE (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 15:20
Það gleymist í umræðunni að "flokkur" er hugtak. Það er alveg sama þó notuð sé persónuaðferðin við að raða á lista, einstaklingar með sömu viðhorfin draga sig saman í hópa, dilka, hreyfingar eða flokka.
Er nokkuð verra að búið sé að mynda hópinn, hreyfinguna eða flokkinn fyrir kosningar en eftir þær?
Ég held ekki.
101 (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 19:03
101: Verra kannksi veltur á hvaða niðurstöðu fólk vill. Fólkið velur ekki persónurnar og vægi þeirra ef flokkurinn er búinn að gera það fyrir kosningar. Flokkavald er alltof mikið í landinu og úrelt. Færa þarf valdið til fólksisns. Þetta virkar í öðrum löndum.
EE (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 23:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.