Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
+Obirt
Nei þetta kom svo þegar leið á daginn. Allt í góðu. Kv.SS.
Sigurbjörn Sveinsson, fös. 5. feb. 2010
hvað var ekki birt?
Sæll Sigurbjörn. takk fyrir innleggið á bloggið mitt. var eitthvað sem fór forgörðum og ég birti ekki? það hefur einu sinni gerst frá öðrum aðila. kær kveðja Snorri í betel
snorri í betel (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 4. feb. 2010
Um Gilsbakkaprest
Ekki var mér ljóst að átt væri við Magnús Andrésson. Mér brá. Svona breytast viðhorfin þegar nafn er komið í söguna. Niðjar Magnúsar eru flestir valmenni og þekki ég þá marga. Það er best að fella þessa færslu niður um sinn og birta ekki nema endurbætta. Hún er hvort eð er bara til hversdagsbrúks.
Sigurbjörn Sveinsson, þri. 12. jan. 2010
Um Gilsbakkaprest
Mér þykir leitt að sá minn fyrrum ágæta lækni frá Búðardal, fara niðrandi orðum um Séra Magnús Andrésson á Gilsbakka. Borgarfjörður væri að miklu fátækari ef hann ætti ekki Séra Magnús og hans niðja. Í barnsminni mínu stafar ljóma af mannkostum Séra Magnúsar og afkomenda hans. Þóroddur M Árnason frá Kistufelli
Þóroddur Már Árnason (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 12. jan. 2010
meira til verndar sýklalyfjum
Gott að eiga góðan vin. Þakka góða umræðu um "sýklalyfjaóregluna" sem þú skrifaðir um og sem var eiginlega tilefnið að bloggsíðu minni og vona ég að umræðan um þetta málefni verði sem almennust. Bestu kveðjur, Villi
Vilhjálmur Ari Arason, þri. 24. mars 2009
Steini Kidadfelli
Sæll frændi, flott hja ther og gott ad halda okkur vid malefnin
steini (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 21. mars 2009
Aðalsteinn úr Djúpi vestur
Enn ber mér að þakka pistil þinn um Tyrðilmýrina, umhvefið, skáldin, fegurðina og svo bráð huggulegan og þarfan endi um, að folar eru títt nefndir eftir þeim stað sem þeim er kastað. Menn eru svo uppteknir af sér sjálfum, að þeir hætta að viðurkenna sig, sem hluta sköpunarverksins og hvað þá upplifa menn sig sem það sem þeri eru, Spendýr. Fegurð er smyrsl sálarinnar, hvort sem er í orði, tónum eða lit. Takk kærlega fyrir Bjarni Kajrtansson alias Miðbæjaríhaldið
Bjarni Kjartansson, fös. 23. jan. 2009