6.8.2016 | 21:13
Sr. Þórir til fyrirmyndar
Það var ánægjulegt að sjá og heyra sr. Þóri fyrrum dómkirkjuprest í gleðigöngunni í dag. Hans guðfræði var einföld. Um leið og hann gerði sér grein fyrir að kynhneigðin væri meðfædd og breytileg, þá lá beint við að álykta að öll værum við guðs börn.
Gráar hærur eru heiðurs kóróna og þeim fylgir gjarnan frelsi andans.
Knattspyrna, kristni og BDSM | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2024
- Nóvember 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Október 2019
- Maí 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Janúar 2018
- Ágúst 2017
- Júní 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Ágúst 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
Bloggvinir
- arh
- asgerdurjoh
- doggpals
- drsaxi
- fhg
- gudrunvala
- hallibjarna
- iceberg
- jorg
- kaffi
- kreppukallinn
- lehamzdr
- oliskula
- ragnar73
- sabroe
- skulablogg
- stefangisla
- undraland
- formosus
- bjarnihardar
- bjarnimax
- gattin
- gp
- zeriaph
- garmur
- helgi-sigmunds
- drum
- disdis
- holmfridurpetursdottir
- jogamagg
- rabelai
- jonmagnusson
- jonsnae
- jonvalurjensson
- kamasutra
- kjarri
- krissiblo
- kristjan9
- maggadora
- martasmarta
- logos
- siggifannar
- siggisig
- unnurgkr
- valdimarjohannesson
- vilhjalmurari
- icekeiko
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sr. Þórir hefur enga sönnun fyrir því, að samkynhneigð sé meðfædd.
Jón Valur Jensson, 7.8.2016 kl. 02:53
Ekki frekar en að Jón Valur hafi sönnun fyrir því að hún sé það ekki. Fögnum fjölbreytileikanum, en göngum jafnframt varlega um gleðinnar dyr.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 7.8.2016 kl. 03:16
Ef að Þórir er að flaðra upp um dragdrottningar; þá er hann ekki starfi sínu vaxinn:
http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/2170644/
Jón Þórhallsson, 7.8.2016 kl. 08:43
Sr. Þórir er trúmaður Jón Valur. Hann þarf engar sannanir. Þetta er hans afstaða. Hún fellur mér í geð og því held ég henni á loft hér á þessu bloggi.
Sigurbjörn Sveinsson, 7.8.2016 kl. 13:01
Mikið hefur verið reynt til þess, um margra áratuga skeið, Halldór Egill, að sanna það að samkynhneigð sé arfgeng eða meðfædd, en ekki tekizt þrátt fyrir viðleitni vísindamanna. Hvað segir það þér?
Ef ljóst er, eins og margir telja, að ófáir einstaklingar hafa áður verið gagnkynhneigðir, en síðar orðið samkynhneigðir, þá styður það ekki beinlínis afstöðu séra Þóris. En árið 1970 skýrði bandaríska Kinsey-stofnunin (mjög hliðholl samkynhneigðum) frá því, að 84% samkynhneigðra, sem þar voru rannsakaðir, höfðu breytzt í kynhneigð a.m.k. einu sinni; 32% þeirra sögðu frá því, að þeir hefðu skipt yfir tvisvar, og 13% kváðust hafa snúizt fimm sinnum í kynhneigð á æviferli sínum (Wood & Dietrich: The AIDS Epidemic, Portland: Multnomah, 1990, s. 238). Af gagnkynhneigðum höfðu skv. sömu könnun 29% breytzt í kynhneigð a.m.k. einu sinni, 4% tvisvar og 1% a.m.k. fimm sinnum (Bell og Weinberg: Homosexualities: A Study of Diversity Among Men and Women; S.K. Hammersmith: Sexual Preference: Its Development in Men and Women, Bloomington: Indiana Univ. Press, 1981).
Þá er ennfremur ljóst, að bæði í hóp- og einstaklings-meðferðum samkynhneigðra, sem leitað hafa til sálfræðinga og þerapista, geðlækna og atferlisfræðinga (meðferðum sem eru af ýmsu tagi, en sálgreiningar-meðferð algengust) hefur náðst, skv. yfirliti um slíkar rannsóknir á árunum 1962-1986, fullur árangur hjá þátttakendum í 27–28% tilfella að meðaltali. (Sjá samantektina Verulegur árangur af meðferð samkynhneigðra á www.kirkju.net)
Með hliðsjón af þessu er kannski ekki undarlegt, að þegar spurt var í skoðanakönnun á Reykjavík síðdegis (Bylgjunni og visir.is) 14. ágúst 2006: "Telur þú að hægt sé að breyta kynhneigð fólks?" þá svöruðu því 63% neitandi, en 37% játandi.
Jón Valur Jensson, 7.8.2016 kl. 13:08
... í 27 til 28% tilfella ...
átti að standa þarna í næstsíðasta málslið.
Jón Valur Jensson, 7.8.2016 kl. 13:12
r. Þórir er trúmaður Jón Valur. Hann þarf engar sannanir. Þetta er hans afstaða. Hún fellur mér í geð og því held ég henni á loft hér á þessu bloggi.
Þú ert læknir Sigurbjörn, eða það stendur hér á síðunni. Mér finnst þetta frekar ólæknisfræðileg niðurstaða....hún fellur mér í geð... og því ályktar þú að það sé rétt.
Getur þú sagt mér hvort kynhneigð sé líkamleg eða huglæg ?
Kristinn Ásgrímsson, 7.8.2016 kl. 15:10
Gengur þessi afstaða þín nógu vel upp, ágæti vinur minn Kristinn, miðað við afstöðu þíns trúfélags sem hér kemur fram: Yfirlýsing 20 trúfélaga og 20 einstaklinga vegna stjórnarfrumvarps um málefni samkynhneigðra
Jón Valur Jensson, 7.8.2016 kl. 15:33
Kristinn: Ég ekkert fullyrt um það, hvort ég hafi rétt fyrir mér. Ég lýsi einungis skoðun minni. Þegar ég er með sjálfum mér, þá leyfi ég mér stundum að vera ekki læknir og prófa ekki skoðanir mínar í ljósi læknisfræðinnar.
Jón Valur: Kristinn er greinilega að vitna í mig. Við skulum ekki hafa hann fyrir rangri sök.
Sigurbjörn Sveinsson, 8.8.2016 kl. 13:06
En ertu trúmaður, Sigurbjörn, ertu ekki í Siðmennt, eða er ég að slá þér saman við annan Sigurbjörn?
En varðandi "frelsi andans", þá er það vitaskuld afar mikilvægt og ekki aðeins á akademísku sviði og í öllum vísindum og öðrum sviðum lífsins. En kristnir menn nota líka sitt andlega frelsi til að finna Krist, m.a. með rannsókn ritninganna, og þegar þeir finna og sjá, hver hann er, þá telja þeir sig bundna honum og hans vilja, boðskap hans og lífsstefnu og þjónustu við að gera sem honum líkar, gagnvart bæði sjálfum sér og öðrum.
Jón Valur Jensson, 8.8.2016 kl. 15:59
Ég er trúmaður Jón Valur. Leiðtogi minn leyfði börnunum að koma til sín og hélt hlífiskildi yfir vændiskonum
Sigurbjörn Sveinsson, 8.8.2016 kl. 20:27
Gott mál, Sigurbjörn.
Jón Valur Jensson, 9.8.2016 kl. 16:25
Og ert það ekki þú sem átt greinina í Mogganum í dag?
Jón Valur Jensson, 9.8.2016 kl. 17:13
Sæll Sigurbjörn og þakka þér svarið, auðvitað hafa allir síinar skoðanir burtséð frá starfi, hins vegar þegar prestar standa gegn kristinni kenningu, þá þykir mér það miður, ekki flott, mér finnst það vera hliðstætt við að læknir taki afstöðu gegn skýrum læknisfræðilegum rökum og myndi fagna þvi að sjúklingur hans væri sjúkur.
Þú svaraðir ekki spurningu minni um kynhneigð, hvort hún væri huglæg eða líkamleg ??? En ég held að það skipti máli. Við stöndum gegn líkamlegum sjúkdómum, af hverju ekki gegn huglægum ?
Já Jón Valur ég kóperaði tilvitnum í Sigurbjörn, kannski ekki nógu skýrt hjá mér. En Guð blessun til ykkar.
Kristinn Ásgrímsson, 9.8.2016 kl. 18:21
Kynhneigð er líkamleg og líffræðilegá breytileg. Breytileikinn er ekki sjúkdómur. Eg er í tengslum við margt samkynhneigt fólk, sem er alls ekki veikt. Raunar flest framúrskarandi manneskjur.
Sigurbjörn Sveinsson, 9.8.2016 kl. 22:38
Samkvæmt JVJ þá væri hægt að gera hann að homma. Nokkur viðtöl hjá sála eða geðlækni, bang JVJ verður gay
DoctorE (IP-tala skráð) 11.8.2016 kl. 10:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.