Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009
26.5.2009 | 16:16
Bestu meðmæli sem þessi framkvæmd getur fengið
Vilja að byggingu Tónlistarhúss verði hætt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.5.2009 | 20:07
Næturvörðurinn
Handan við þilið
er næturvörðurinn.
Þarna hefur hann verið
um kynslóðir.
Hann lýsir skotið sitt
með grútartýrunni,
þannig að ætíð er dagljóst.
Enn í dag.
Mjúkir stafir
fylla rúnir tímans.
Ef til vill örlítil birta
ofan af Íslandi.
Það er ekki allt framfarir
sem svo er kallað,
sagði séra Matthías.
(Amsterdam 2009)
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
4.5.2009 | 11:40
Hvað er pólitísk afstaða?
Er það afstaða sem byggir á einhverjum öðrum forsendum en þeim sem fagmenn gefa sér? Er það afstaða þeirra sem sjá minni hagsmuni í öðru ljósi en fagaðilar? Gefa hinum svokölluðu minni hagsmunum annað vægi en sérfróðir gera í samanburði við meiri hagsmuni. Fylgir hinni pólitísku afstöðu krafa um að hún sé ekki vegin með sama hætti og sú afstaða sem tekin er á faglegum forsendum; með öðrum orðum að ekki þurfi að svara fyrir hana með rökum sem standast þurfa almenna gagnrýni?
Þess konar dæmi eru vel þekkt. Sagan segir að það hafi tekið þingmenn Vestfjarða einungis tíu mínútur að taka ákvörðun um tengingu landshlutans við þjóðvegakerfi landsins um Steingrímsfjarðarheiði. Heiðin var lakasti kosturinn af þremur að áliti fagaðila, það er Vegagerðarinnar. Ákvörðunin var greinilega háð einhverjum öðrum hagsmunum en tæknimenn höfðu komið auga á við rannsóknir árum saman. Þá var sagt að þetta hefði verið pólitísk ákvörðun.
Gylfa Magnússyni ráðherra er legið á hálsi fyrir að taka faglega afstöðu til tillagna um aðgerðir almennings sem skapa mun ringulreið í fjármálakerfi landsins og "aðra sanngirni" en nú gildir. Eins og Gylfa hefur verið hampað fram að þessu af röddum almennings, þá sýna þessi viðbrögð ljóslega hverflyndi fjöldafylgisins.