Jólagrautnum stolið

hér af dyrapallinum í nótt. Aldrei komið fyrir áður neitt þessu líkt. Með "manni og mús" ef svo má segja. Varla verið krummi.

En frúin dó ekki ráðalaus, átti nóg af soðnum grjónum og fékk rjóma hjá góðum nágranna.


mbl.is Jólaölinu stolið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðþrengdir draumar

Ég átti lítinn fugl,

sem þandi út vængina

og dansaði með handleggjunum.

Þeir voru eins og sígrænn vafningsviður,

sem boðaði notalegt sumar

um  nákaldan vetur.

 

Fuglinn er orðinn of stór 

fyrir lófann minn.

 

Þetta var þegar myrkrið

missti fótanna

og háaloftið fylltist af draumum,

sem urðu eins og bonsai tré

eða blæðandi fætur

í alltof þröngum táskóm.

 


Tilbrigði

Söknuður þinn

er silkimjúk sprengja,

sem fyrir löngu

hefur sprengt sig inn

í þakklátt hjarta mitt. 

 

Úr nafla hennar

vex jöklasóley. 


Stjórnlagaráðsmenn fara um með gífuryrðum

Þorvaldur Gylfason segir, að "já" við tillögum stjórnlagaráðs geri þær óbreyttar að stjórnarskrá Íslands. Eiríkur Bergmann Einarsson segir, að "nei" við sömu spurningu geri frumvarp til nýrrar stjórnaskrár að engu og skjóti öllum stjórnaskrárbreytingum á frest um ófyrirsjáanlega framtíð. Hafi þessir menn báðir rétt fyrir sér, eru þær efnislegu spurningar, sem lagðar eru fyrir þjóðina í kosningunum næsta laugardag, markleysan ein.

Steininn tók þó úr í útvarpsprédikun síðast liðinn sunnudag þegar Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í Neskirkju, sagði lýðveldisstjórnarskrána undirstöðu misréttis og ófriðar í samfélaginu og að þeir, sem legðust gegn tillögum hans og félaga um breytingar á henni, vera bófaflokka, sem reyndu að verja sérhagsmuni sína með því að standa gegn stjórnarskrárbreytingunum.

Við höfum sem sagt náð þeim árangri, sem við blasir, þrátt fyrir stjórnarskrána.

Með orð þessara manna í huga tel ég skynsamlegt að meta handaverk þeirra að nýju áður en greidd verða atkvæði um þau. 


Bróðir

Um sumarsólstöður

hvarf maður mér nákominn

á braut.

 

Hann fór um boga litbrigðanna

inn í sköpunarverkið.

 

Faldi dauðann

í erminni

- eins og hvert annað bragð

á sviði.

Þögull um eigin örlög.

 

Hjarta hans sló

í sólheitu landi

í engum takti

við ljá eilífðarinnar.

 

Slíkur maður

verður ekki syrgður

í harmi augnabliksins.

 

Þarna!

Þarna við dagsbrún

er söknuðurinn

á vængjum tímans.   

 

 


Kvennaathvarfið - þjóðþrifastofnun því miður

Heimilisofbeldi er böl, sem margir búa því miður við,  bæði karlar og konur. Miklu algengara er, að konur verði fyrir ofbeldi maka eða sambýlismanns og karlar neyta líkamsburða sinna til að halda undirtökum í fjölskyldunni eða fá útrás fyrir kvalalosta. Kvennaathvarfið var því eins og himnasending fyrir konur, sem áttu engan annan kost en að flýja ógnina og leita skjóls utan heimila sinna.

Æ fleiri konur leita til athvarfsins með og án barna og húsnæðisþörfin er brýn. Kvennaathvarfið er sjálfstætt og getur ekki reitt sig á framlög hins opinbera og er háð hinum almenna borgara um stuðning. Við þurfum að styðja það núna í húsnæðisvandræðunum - öll með tölu.


Farið um Brattabrekku en ekki Bröttubrekku

Þegar komið var af fjallinu á póstleiðinni vestur í Dali og niður í Suðurárdal var farinn svokallaður Bratti. Leiðin liggur austan við núverandi vegarstæði vestur. Brattabrekka dregur nafn sitt af þessum Bratta. Því er rétt að segja að farið sé um Brattabrekku en ekki Bröttubrekku. Svipað dæmi er Kaldakinn. Maður fer í Kaldakinn en ekki Köldukinn.

Hljóðvörpin vinna á þessum orðum með tímanum og nöfnin glata upprunalegri merkingu sinni.


mbl.is Óveður á Holtavörðuheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnendur í klemmu fjárveitinga og fagráðuneytis

Það er gömul saga og ný að erfiðlega gangi að ná endum saman á heilbrigðisstofnunum landsins. Landsmenn og fulltrúar þeirra í stjórnmálaum eru áhugasöm um að veita eins góða þjónustu og völ er á fyrir sem minnstan pening. Eðli málsins samkvæmt verður eilíft reiptog milli þessara sjónarmiða og erfitt að fullnægja allra kröfum.

Það sannast ítrekað á Heilbrigðisstofnun Austurlands, að ekki gott að gera svo öllum líki í þessum efnum. Nú hefur Ríkisendurskoðun upplýst að stofnunin hafi brugðist tilhlýðilega við þriggja ára tilmælum hennar um fjárreiður og aðra stjórnsýslu en samt sem áður þurft að reka stofnunina að hluta til með rándýrum yfirdráttarlánum. Þetta gerist þrátt fyrir samdrátt í þjónustu með erfiðum niðurskurði og fækkun starfsmanna. Hafa yfirmenn stofnunarinnar fengið bágt fyrir frá öllum, íbúum, starfsmönnum og stjórnmálamönnum. Þeir hafa sem sagt verið skammaðir við skyldustörfin.

Stjórnendur HSA eiga ekki nema einn kost þ.e. að skera enn frekar niður þrátt fyrir ramakveinin. Hinn kosturinn er sá, að stjórnmálamennirnir láti af tvískinnungnum og bæti fjárhag stofnunarinnar eða aðstoði stjórnendur og styðji við frekari niðurskurð og samdrátt í þjónustu.


mbl.is Fjármögnuðu rekstur með yfirdrætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pulsur og hamborgarar

Það er gaman að sjá, að Tomma ætlar að ganga jafn vel með hamborgarana á Marylbone Lane og Dadda hefur gengið með pulsuvagninn á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn. Síðan verða það Tommaborgarar í Kaupmannahöfn og pulsuvagn í Soho.

Þetta er allt að koma strákar.


mbl.is Salan hjá Tomma aukist um 30-40% í Lundúnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Harpa gengur furðu vel

Brúttótekjur Hörpu að andvirði á sjöunda hundrað milljóna á fyrsta starfsári þykja mér ágætar. Fasteignagjöldin koma eins og frá annarri veröld. Er ekki rétt að leggja þau gjöld á skv. sömu reglu og önnur hús í skemmtanabransanum, sem njóta ekki rekstrarstyrkja? Á Harpa að greiða hærri fasteignagjöld en t.d. bíóin?

Þetta er bara einhver vitleysa, sem hér er í gangi. Ekki ætla Jón Gnarr og félagar að hafa þetta hús að féþúfu? Eða skríða allir marbendlar úr skotum sínum, þegar minnst er á að samfélagið þarfnist lista, sem lifa ekki án sameiginlegs átaks?  Sjálfbærnin verður ekki eingöngu mæld með krónum fyrir krónur eða auga fyrir auga.  


mbl.is Hrakspár vegna Hörpu að rætast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband