Fćrsluflokkur: Ljóđ
31.10.2018 | 18:01
Í ţessum töluđu orđum
Matthías er í lestinni,
sem rennur eins og dauđinn
í hávćrri ţögn
eftir teinum lífsins.
Hann hefur engu gleymt
og leiđin í Múlakaffi
er vörđuđ
ilmgráum kjötsúpupottum.
Ljóđ | Breytt 22.12.2018 kl. 21:43 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
31.1.2018 | 21:49
#metoo
Mađur gengur fyrir horn
og skyndilega er vindurinn í fangiđ.
Eins og andardráttur fjöldans,
ísnálar og klammađir kjálkar.
Ljúf byrđi hversdagsins
breytist í ok andúđar
og á baki vinanna
má sjá tannlaust glott
hverfa inn í hríđina.
Eins og bóndinn fyrir vestan
gekk ég í hringi í ţrjú dćgur
á međan kafaldiđ kvaldi úr mér lífiđ.
Ţúst á berangri umvafin hvítri vođ
og ástvinirnir áhyggjulausir,
innan seilingar.
Ljóđ | Breytt 22.12.2018 kl. 21:43 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
26.1.2018 | 23:33
Restart
Héđan voru á dögunum
eđa árunum send ljóđ
út í myrkriđ.
Og myrkriđ tók viđ ţeim
og kveikti sviđsljósin.
Slík athygli endar ađ jafnađi
međ skelfingu
í hljómsveitargryfjunni.
Ţar voru ţeir Matthías, Húsari og Gunnar
međ tannburstana sína eina ađ vopni.
Menn hafa reynt ađ moka sig úr snjó
međ dósarloki eđa rúđusköfu.
Ţađ skilar engu
fyrr en barnatímanum lýkur.
Ljóđ | Breytt 28.1.2018 kl. 20:51 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (9)
27.7.2015 | 23:17
Uppskeran
Fyrir utan gluggann minn
er gamall kunningi.
Ekki fönn eins og forđum í Brimnesi
heldur fögur og beinvaxin ösp.
Hún teygir sig hćrra
en ávöxtur lífs míns.
Greinarnar slúta í stafalogni
undan blágrćnum blöđum,
sem eitt sinn voru björt í vorinu.
Ţau eru bólgin af jarđgrćnni lífsbjörginni,
sem líđur til rótanna.
Fyrr en varir hverfur lífsmagniđ
og ný brigđi taka viđ.
Viđ fögnum nýjum málmlitum,
járnrauđum og krómgulum
í margbreytileika haustsins.
Gráar hćrur eru heiđurs kóróna
var sagt um annađ fallandi lauf.
Ljóđ | Breytt 28.7.2015 kl. 12:23 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
29.10.2012 | 20:56
Ađţrengdir draumar
Ég átti lítinn fugl,
sem ţandi út vćngina
og dansađi međ handleggjunum.
Ţeir voru eins og sígrćnn vafningsviđur,
sem bođađi notalegt sumar
um nákaldan vetur.
Fuglinn er orđinn of stór
fyrir lófann minn.
Ţetta var ţegar myrkriđ
missti fótanna
og háaloftiđ fylltist af draumum,
sem urđu eins og bonsai tré
eđa blćđandi fćtur
í alltof ţröngum táskóm.
Ljóđ | Breytt 30.10.2012 kl. 22:29 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
18.10.2012 | 10:27
Tilbrigđi
Söknuđur ţinn
er silkimjúk sprengja,
sem fyrir löngu
hefur sprengt sig inn
í ţakklátt hjarta mitt.
Úr nafla hennar
vex jöklasóley.
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 13:35 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
30.9.2012 | 21:16
Bróđir
Um sumarsólstöđur
hvarf mađur mér nákominn
á braut.
Hann fór um boga litbrigđanna
inn í sköpunarverkiđ.
Faldi dauđann
í erminni
- eins og hvert annađ bragđ
á sviđi.
Ţögull um eigin örlög.
Hjarta hans sló
í sólheitu landi
í engum takti
viđ ljá eilífđarinnar.
Slíkur mađur
verđur ekki syrgđur
í harmi augnabliksins.
Ţarna!
Ţarna viđ dagsbrún
er söknuđurinn
á vćngjum tímans.
Ljóđ | Breytt 30.10.2012 kl. 22:32 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
18.8.2011 | 21:45
Harpan í áföngum
Um glugga hússins
stafar ljósbrotnum minningum
margra heima.
Og Hljóđabungan
rís á snćlögum kynslóđa,
sem lögđu henni allt sitt
í gnauđi ókunnra radda.
Ţar -
eru Drangar genginna.
En Kaldalón
fóstrađi blómstur
hlýrra tóna
viđ jökulsporđinn...
...ţrátt fyrir allt.
Ljóđ | Breytt 9.2.2012 kl. 21:40 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
15.8.2011 | 17:19
Alzheimer
Á tónum rökkurs tifa minningar
og týndir gestir sveima ţér viđ bak.
Fugl í brjósti syngur framtíđinni ljóđ,
sem flögrar hjá
í gćr eitt andartak.
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 17:33 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)
2.2.2011 | 23:15
Ljóđaljóđ
Árstíđum saman
hef ég ferđast
frá einni opnu
til annarrar
og nú fangar
ţú mig
í pakkhúsi minninganna.
Ţar eru plastdósir
fullar af litríkum tannburstum
sem týna tölunni
einn af öđrum
án nokkurrar miskunnar.
Tilvísun í Matthías Johannessen
Ljóđ | Breytt 9.3.2011 kl. 16:08 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)